154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

framlagning stjórnarmála.

[15:04]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Vegna þessara orða forseta um að nú sé staðan svipuð og á síðasta þingi er rétt að rifja það upp að á síðasta vorþingi fór allt í klessu. Það fóru engin mál í gegn nema eitt og eitt dagsetningarmál og EES-mál og það var út af deilum á milli stjórnarflokkanna. Maður veltir fyrir sér fyrir hvern þessi kyrrstöðuríkisstjórn starfar. Hver er það sem hagnast á aðgerðaleysinu? Hér er ekki farið í brýn mál sem skipta miklu máli fyrir almenning í landinu. Málefnastaðan er svona, forseti, að það eru komin 19 stjórnarmál af þeim 113 sem eiga að koma samkvæmt þingmálaskránni á þessu haustþingi og það eru bara 25 þingfundadagar eftir af haustþingi. 113 mál eiga að koma inn samkvæmt dagskránni, 19 eru komin. Það er ekkert að gerast, forseti.