154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

framlagning stjórnarmála.

[15:05]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég tek til máls um fundarstjórn forseta. Alla jafna kvartar maður ekkert undan því þó að léleg ríkisstjórn sé ekki mjög dugleg að koma málum á framfæri. En það sem verkleysi þessarar ríkisstjórnar undanfarin ár hefur þó leitt í ljós er að það skiptir máli hverjir stjórna og það skiptir máli þegar dugleysið er algjört vegna þess að þá sitja eftir risamál sem varða íslenskan almenning. Ég er ekki bara tala um óðaverðbólgu og sturlaða vexti, ég er ekki bara að tala um ráðleysi í heilbrigðismálum, ég er að tala um kyrrstöðuna í orkumálum líka. Ég er að tala um loftslagsmálin. Ég er að tala um stöðuna í samgöngumálum landsmanna. Það er ekki hægt til lengdar að litla Alþingi við ríkisstjórnarborðið, þar sem takast á stjórn og stjórnarandstaða endalaust og ekkert gerist, ráði för og eftir situr íslenskur almenningur með engin svör við því hvernig taka á á stærstu úrlausnarefnunum. Þannig að ég tek undir þessa gagnrýni og kalla eftir að hér gerist eitthvað.