154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

Störf þingsins.

[15:07]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Virðulegi forseti. Það fór fram góð umræða um tillögu til þingsályktunar um fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslunnar á Akureyri hér í þingsal í gær, jákvæð og uppbyggileg umræða um mikilvægt mál sem varðar grundvallaröryggishagsmuni á þeim landsvæðum sem liggja fjærst höfuðborgarsvæðinu. Það er víðtækur stuðningur við málið hér á þingi. Ásamt þeim sem hér stendur eru 16 þingmenn á málinu. Þingsályktunartillagan gengur út á að fela dómsmálaráðherra að beita sér fyrir því að Landhelgisgæslan komi upp fastri starfsstöð fyrir eina af þyrlum sínum á Akureyri í samstarfi við hagaðila þar.

Í nýrri rannsókn sem Björn Gunnarsson, yfirlæknir á sjúkrahúsinu á Akureyri og dósent við Háskólann á Akureyri, og fleiri hafa unnið kemur fram að besta leiðin til að efla björgunargetuna heilt yfir á landi sé að staðsetja þyrlu á Akureyri til viðbótar við þyrlu á Reykjavíkurflugvelli. Þyrlur eru öflug björgunartæki sem geta flýtt fyrir björgun úr erfiðum aðstæðum og í mörgum tilfellum geta þær verið eini kosturinn til bjargar. Í slíkum tilfellum getur stuttur viðbragðstími skipt sköpum og því mikilvægt að staðsetja þyrlur á fleiri en einum stað á landinu, m.a. í þeim tilgangi að stytta tíma til björgunar. Sama gildir um sjúkraflutning á einstaklingum með lífshættuleg veikindi eða áverka, oft af vettvangi alvarlegra slysa. Þar er mikilvægt að geta brugðist skjótt við, koma með sérhæfða aðstoð á staðinn og geta flutt veika eða slasaða á viðeigandi sjúkrastofnun innan þeirra tímamarka sem nauðsynlegt er. Mikilvægt er að á austurhluta landsins sé boðið upp á sömu þjónustu eins og við þekkjum í dag á vesturhluta landsins þar sem þjónustuhlutverkið er allt miklu betra og ekki hægt með neinum hætti að bera saman vestur- og austurhluta landsins í tengslum við þjónustustigið sem er veitt í dag. Úr þessu þarf að bæta sem allra fyrst.