154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

Störf þingsins.

[15:27]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Fjórða samantektarskýrsla vísindanefndar um loftslagsbreytingar var gefin út í morgun. Í skýrslunni kemur fram að loftslagsbreytingar eru byrjaðar að breyta náttúrufari og lífsskilyrðum fólks á Íslandi. Við verðum að umbreyta lífsháttum og umgengni okkar við náttúruna, draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eins hratt og unnt er og aðlaga samfélagið þannig að það ráði við álagið. Áhrif loftslagsbreytinga í öðrum löndum geta svo skapað umtalsverðar kerfisáhættu hér á landi með áhrifum á fæðuöryggi og lýðheilsu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur bent á að loftslagsbreytingar séu stærsta heilsufarsógn sem mannkynið stendur frammi fyrir. En hér á landi, forseti, vantar forystu ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Það skortir ábyrgð og traust til að leiða mikilvægar og bráðnauðsynlegar aðgerðir, tímasettar og fjármagnaðar. Í ábendingum í skýrslunni segir, með leyfi forseta:

„Mikilvægt er að mótvægis- og aðlögunaraðgerðir auki ekki misskiptingu í samfélaginu. Sé þess ekki gætt eykst hætta á að það dragi úr áhrifum aðgerða, þær missi marks og skapi jafn vel aðrar samfélagslegar áskoranir.“

Ég hef þrisvar mælt fyrir þingsályktunartillögu okkar í Samfylkingunni um að fela ríkisstjórninni að gera tímasetta og fjármagnaða aðgerðaáætlun til að tryggja réttlát græn umskipti. Kallað yrði þá eftir samráði verkalýðsfélaga, sveitarfélaga og atvinnurekenda. Markmiðið væri að koma í veg fyrir ójafnrétti sem hlotist getur af loftslagsvá og tryggja að græn umskipti ýti undir aukinn jöfnuð í samfélaginu ásamt því að fjárlög og fjármálaáætlanir endurspegli vilja Íslands til þess að standa við skuldbindingar sínar á alþjóðavettvangi í loftslagsmálum. (Forseti hringir.) Þingsályktunartillagan er nú til vinnslu í efnahags- og viðskiptanefnd og skýrslan sem kom út í morgun ætti að vera hvatning fyrir nefndarmenn að afgreiða hana hratt út úr nefndinni og til samþykktar hér í þingsal.