154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

Störf þingsins.

[15:32]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Við höfum auðvitað mikið hér í þessum sal og úti í samfélaginu verið að ræða söluna á Íslandsbanka og þó einkum og sér í lagi hversu misheppnuð hún hefur verið á alla kanta og fengið falleinkunn hjá öllum þeim sem gefið hafa álit eða rýnt í það hvernig staðið var að framkvæmdinni. Við höfum hins vegar minna gert af því hér í þessum sal að ræða um það hvernig best væri að verja peningunum, vegna þess að þetta eru einskiptistekjur sem detta inn í ríkissjóð og um þær ættu að gilda aðeins önnur lögmál en þessar reglubundnu tekjur sem ríkissjóður hefur alltaf. Þetta eru 100 milljarðar á næstu tveimur árum sem gert er ráð fyrir í fjárlögum að selja í bankanum, þ.e. 50 milljarðar á næsta ári og 50 milljarðar á þarnæsta ári.

Vaxtagjöld ríkissjóðs eru þriðji stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs. Við Íslendingar erum að borga mun hærri vaxtagjöld heldur en aðrar þjóðir hlutfallslega þrátt fyrir að skulda minna hlutfallslega en margar af þessum sömu þjóðum. Mér finnst því einboðið að þær tekjur sem detta inn vegna sölu á eignarhlutum í Íslandsbanka eigi að fara í það að greiða niður skuldir til að lækka þessi sömu vaxtagjöld og/eða í einhver mjög afmörkuð innviðaáform sem vanrækt hafa verið. Þetta finnst mér vera algjört lykilatriði og mér finnst að við þurfum að fara að færa umræðuna þangað. Ég hef reyndar talsverðar áhyggjur af því eftir að hafa hlýtt á forsætisráðherra hér í vikunni að hæstv. forsætisráðherra treysti sér ekki til þess að slá því föstu að það verði staðið við þau áform að selja hlut í bankanum á næsta ári. Og mér fannst hæstv. viðskiptaráðherra í fjölmiðlum í vikunni sömuleiðis vera að teikna upp einhver skilyrði sem ætti að vera eitthvað flókið að uppfylla á skömmum tíma, en þau skilyrði eru reyndar bundin í lögin sem um þetta gilda nú þegar. Ég er þeirrar skoðunar að við ættum að fara í eins almennt og opið útboð og hægt er strax á næsta ári og nýta fjármunina til að grynnka á háum vaxtagjöldum ríkissjóðs. Við greiðum hærri vexti, Íslendingar, og meiri heldur en þjóðir sem skulda hlutfallslega meira.