Störf þingsins.
Herra forseti. 6. febrúar síðastliðinn átti ég hér orðastað í fyrirspurnatíma við heilbrigðisráðherra um aukinn fjölda svokallaðra umframdauðsfalla eins og Hagstofan kallar það. Hæstv. ráðherra kom dálítið af fjöllum gagnvart fyrirspurninni og ég er hér kominn í dag til að láta hann vita af því að í næstu viku ætla ég að spyrja hann um efni af svipuðum meiði. Það birtist grein í Morgunblaðinu í morgun sem Helga Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir skrifar þar sem eru settar fram áleitnar spurningar varðandi Covid-tímabilið og bólusetningarsprautur sem þá voru veittar. Helga Birgisdóttir skrifar í þessari grein í Morgunblaðinu m.a. að heilbrigðisstarfsfólki beri skylda til að tilkynna til Lyfjastofnunar aukaverkanir nýrra lyfja. „Það var sjaldan gert“, segir í greininni. Áfram segir, með leyfi forseta:
„Fólk sem hefur glímt við alvarlegar aukaverkanir sprautnanna segist ekki fá hlustun …“ og enn segir áfram, með leyfi forseta:
„Ég spyr ykkur hjúkrunarfræðinga og ljósmæður hvort einhver umræða sé í gangi varðandi 80% aukningu á andvana fæðingum á Íslandi árið 2021 …“ og áfram segir, með leyfi forseta:
„100% aukning var á andlátum barna innan eins árs aldurs þetta sama ár (sjá tölur Hagstofunnar).“
Ég vil hér, eins og ég sagði áðan, láta hæstv. heilbrigðisráðherra vita af því að í fyrirspurnatíma í næstu viku verður ráðherrann spurður út í þetta, með hvaða hætti sé verið að skoða þessa þætti og hvort einhverjar niðurstöður hafi fengist út frá því sem þegar hefur verið skoðað. Þetta geri ég til að reyna að fyrirbyggja að ráðherrann mæti hér og tali um fátt annað en veðrið og þakkir fyrir fyrirspurnina eins og svo oft vill verða. En þessu er hér með komið á framfæri.