154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

almannatryggingar.

20. mál
[16:17]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Ég verð bara að segja að hv. þingmaður og Píratar almennt hafa verið algerlega óþreytandi nákvæmlega að fylgjast með og reyna að sjá hvar pottur er brotinn í störfunum hér á þingi og þeir eiga heiður og sóma skilið fyrir það og ég veit að hv. þingmaður og Píratar eru algerlega í takti og ganga í takti við okkur í Flokki fólksins þegar kemur að því að berjast fyrir bættum hag þeirra sem höllustum fæti standa.

Ég tek undir með hv. þingmanni einnig, sem er náttúrlega líka með arnaraugu inni í fjárlaganefnd, að það að lífeyrissjóðsgreiðslur okkar séu síðan metnar eins og atvinnutekjur og skattlagðar sem slíkar er náttúrlega alfarið síðasta sort. Við erum lögþvinguð til að greiða í lífeyrissjóði. Þetta eru okkar peningar og þegar við erum að fá þetta greitt eða erum að greiða af þessu þá eigum við ekki að greiða af þessu tekjuskatt, við erum búin að greiða tekjuskattinn af öllu heila klabbinu, ef ég er að skilja rétt, en ég sé að hv. þingmaður hristist allur þannig að ég er örugglega í einhverri villu og svima þannig að ég veit að í næsta andsvari þá leiðréttirðu þetta bara snarlega.