almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég vil taka heils hugar undir með hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni. Þetta er mjög skringileg staða á vorum dögum, að maður skuli þurfa að vera að eiga í útistöðum við sjálft ríkið, sjálfan ríkissjóð sem aldrei hefur staðið betur í sögunni; 100 milljarðar umfram væntingar á þessu ári úr einni megingrein, ferðaþjónustunni, og að á þessum tímum þegar hækkandi vextir og verðbólga eru að hrjá venjulegt fólk meira en vera skyldi þá skuli menn þurfa að vera í útistöðum við löggjafann. Við vitum að margt af því sem við verðum að horfast í augu við í dag eru einhvers konar leifar af neyðarlögunum sem sett voru hér eftir hrun þegar allt var í rjúkandi rúst að menn töldu. Auðvitað voru fjölmörg mistök gerð á svo viðsjárverðum tímum en þau ætti að vera löngu búið að laga.
En þetta er ekki nýtt af nálinni. Við sjáum að þegar okkur var kynnt til sögunnar hugtakið verðtrygging var allt logandi í samfélaginu og sparifé landsmanna að brenna upp. Þá var kynnt verðtrygging sem náði bæði til inneigna lífeyrissjóða og launa. Án þess að mikið færi fyrir því var klippt á það. Sá sem átti fjármagnið hélt því verðtryggðu eftir atvikum en launamennirnir voru skornir út.
Það að Flokkur fólksins skyldi hafa þurft að fjármagna málshöfðun gegn íslenska ríkinu fyrir örfáum árum síðan og unnið hana, sem betur fer, er óttalegur smánarblettur á hinu íslenska lýðveldi, að stjórnmálaflokkur skuli vera að standa í slíku að stefna ríkinu. Þessi skerðingapólitík og „pólisía“ er í rauninni með öllu ólíðandi og ósæmandi. Aldrei hittir maður nokkurn mann sem er í rauninni sammála þessari stefnu eða talar fyrir henni en hún er eins og mein sem gerjar um sig einhvern veginn, hreiðrar um sig í þjóðarlíkamanum og mallar. Hvers vegna í dauðanum?
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég vil bara taka heils hugar undir það sem hér hefur verið sagt í dag af þessu tilefni. Við styðjum auðvitað heils hugar það frumvarp sem hér verður lagt fram á morgun og við eigum þá ósk heitasta að verða bænheyrð fyrir hönd þess þjóðfélagshóps sem fer stöðugt vaxandi og styttist í að verði um helmingur kjósenda. Kannski má vænta þess að eitthvað taki breytingum þegar sú tölulega staðreynd liggur endanlega fyrir.