154. löggjafarþing — 17. fundur,  18. okt. 2023.

Alexandersflugvöllur sem varaflugvöllur fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli.

127. mál
[18:32]
Horfa

Flm. (Bjarni Jónsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér í dag fyrir þingsályktunartillögu um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli. Með mér á málinu er sem áður hv. þm. Miðflokksins, Bergþór Ólafsson. Málið kom fyrst fram á 144. löggjafarþingi, þá í flutningi Ásmundar Einars Daðasonar og hafði síðustu árin verið flutt af Sigurði Páli Jónssyni. Eins og orð mín gefa til kynna mæli ég ekki fyrir málinu í fyrsta sinn en ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að Alexandersflugvöllur sé hinn ákjósanlegasti kostur þegar litið er til varaflugvalla. Það er skemmst frá því að segja að ég lagði fram fyrirspurnir um málefnið sem varaþingmaður á síðasta kjörtímabili. Tillagan var áður lögð fram á 144., 150., 151. og 152. löggjafarþingi (720. mál). Tillögunni var breytt og hún lögð fram á 153. löggjafarþingi (159. mál) og gekk hún til umhverfis- og samgöngunefndar.

Í umsögn byggðarráðs Skagafjarðar var undirstrikuð heppileg landfræðileg lega Alexandersflugvallar með tilliti til veðurfars og góðra lendingarskilyrða. Þá áréttaði byggðarráð Skagafjarðar að unnið hefði verið að endurbótum á vellinum af hálfu sveitarfélagsins. Þá myndu umbætur á vallarbúnaði enn frekar fækka dögum sem ekki væri mögulegt að lenda á vellinum sem eru nú þegar fátíðir. Sú umsögn var í takt við fyrri umsagnir sem borist hafa vegna tillögunnar og skyldra tillagna.

Nú í þessari atrennu er málið lagt fram án efnislegra breytinga. Tillagan sjálf gengur út á að fela innviðaráðherra að gera ítarlega athugun á kostum þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll, Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll og kynna hana með vorinu. Í greinargerðinni eru tilteknar helstu ástæður þess að flugvöllurinn þykir heppilegur valkostur sem varaflugvöllur. Meðal þeirra ástæðna er einstaklega góð landfræðileg lega Alexandersflugvallar með tilliti til jarðhræringa og/eða eldgosa sem hamlað geta flugsamgöngum. Ég tel mikla þörf á varaflugvelli þar sem aðstaða til lendingar og flugtaks eru sem bestar, ekki mjög fjarri Keflavíkurflugvelli og einnig flugvellinum á Akureyri og ljóst að aðrir flugvellir uppfylla þau skilyrði ekki eins vel.

Alexandersflugvöllur á Sauðárkróki er aðeins 120 km frá Akureyri. Milli Sauðárkróks og Reykjavíkur eru um 295 km. Í gögnum frá Vegagerðinni frá árinu 2019 kemur fram að þjóðvegurinn frá Sauðárkróki til Reykjavíkur hafi aðeins verið lokaður í 0,7 daga á ári frá árinu 2011 á meðan þjóðvegurinn frá Egilsstöðum að höfuðborgarsvæðinu lokast í 2,5 daga á ári ef keyrð er suðurleiðin og næstum tíu daga á ári ef styttri leiðin um Norðurland er farin. Aðflug í Skagafirði er gott enda er fjörðurinn víður og lítið um hindranir. Völlurinn vísar í norður og suður sem eru einnig ríkjandi vindáttir í Skagafirði. Þá er staðsetning vallarins hagstæð með tilliti til snjóa og álags á flugbrautum.

Heilt yfir er mikilvægt að við tryggjum öryggi samgangna, hvort sem er á jörðu, sjó eða í lofti. Þessi tillaga er liður í því að fjölga valkostum á þeirri vegferð. Að því sögðu vænti ég þess að tillagan fái góða og gegna vinnu í háttvirtri umhverfis- og samgöngunefnd.