154. löggjafarþing — 18. fundur,  19. okt. 2023.

aðgerðir gegn verðbólgu og nýting á skattfé.

[11:07]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og ég vona að hún geti komið inn á þetta með Íslandsbanka í seinna svari.

Hæstv. ráðherra sagði hér fyrr í umræðunni eftirfarandi: Fólk verður að trúa því að við náum tökum á verðbólgunni. Miðað við hvernig ástandið er í dag og miðað við hvernig verðbólgan er í dag þá hefur fólk ekki trú á því að við náum tökum á verðbólgunni. Við erum með 9,25% stýrivexti. Noregur er með 4,25% vexti. Af hverju er það? Jú, það er vegna þess að stór hluti húsnæðislána er verðtryggður. Bankarnir bera ekki verðbólguáhættuna. Annar hluti er líka á föstum vöxtum. Það er einungis lítill hluti á breytilegum vöxtum. Í Noregi er það þannig að 97–98% húsnæðislána eru á breytilegum vöxtum. Stýrivaxtamekanismi Seðlabankans virkar einfaldlega ekki.

Annað sem skiptir líka máli og er aðalatriðið í þessum sal er það að ríkissjóður er ekki að beita sér í baráttunni gegn verðbólgu. Ríkisfjármálunum er ekki beitt. Mun ráðherra (Forseti hringir.) nota ríkisfjármálin til að til að keyra niður verðbólguna?

Og annað: Mun ráðherrann fara í aðgerðir fyrir fólkið í landinu, þar á meðal aldraða og öryrkja, og m.a. styðja það frumvarp sem verður mælt fyrir í dag sem lýtur að hækkandi frítekjumarki til ellilífeyrisþega?