154. löggjafarþing — 18. fundur,  19. okt. 2023.

almannatryggingar.

108. mál
[11:10]
Horfa

Flm. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga frá Flokki fólksins um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, frítekjumark vegna lífeyristekna. Flutningsmaður og frummælandi átti að vera hv. þm. Inga Sæland. Ég flyt málið í hennar stað og allur þingflokkur Flokks fólksins er á þessu máli. Auk mín eru það hv. þingmenn Inga Sæland, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson. Þess skal sérstaklega getið að öllum þingflokkum var boðið að vera með á þessu máli en enginn af þeim taldi sig hafa það að leiðarljósi að styðja þetta mál, sem hlýtur að vera stórfurðulegt.

„1. gr.

Við 3. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá skal lífeyrisþegi hafa sérstakt frítekjumark vegna lífeyristekna sem nemur 1.200.000 kr. á ári.

2. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2024. […]

Frumvarp þetta var lagt fram á 149., 150., 151., 152. og 153. löggjafarþingi — og nú er verið að leggja það fram í sjötta sinn — en hlaut ekki afgreiðslu. Það er nú lagt fram að nýju. Fjórar umsagnir bárust um frumvarpið á 152. löggjafarþingi, frá Öryrkjabandalagi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp, Landssamtökum lífeyrissjóða og Landssambandi eldri borgara. Þá bárust tvær umsagnir um málið á 153. löggjafarþingi frá Landssamtökunum Þroskahjálp og Landssamtökum lífeyrissjóða. Umsagnaraðilar studdu allir markmið frumvarpsins.

Almennt frítekjumark er mjög lágt í sögulegu samhengi og er markmið þessa frumvarps að auka sanngirni í almannatryggingakerfinu og hvetja til sparnaðar lífeyrisþega með því að draga úr skerðingum. Með lögum nr. 116/2016, um breytingar á lögum um almannatryggingar og fleiri lögum, var meðal annars gerð sú breyting á ellilífeyriskerfi almannatrygginga að öll sértæk frítekjumörk vegna einstakra tegunda tekna voru afnumin. Þess í stað var lögfest eitt almennt frítekjumark sem nemur 300.000 kr. á ári og gildir um allar tekjur ellilífeyrisþega, óháð tegund þeirra. Með lögum nr. 96/2017 var einnig lögfest sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna, samanber nú 2. málslið 3. mgr. 22. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar.

Samkvæmt upplýsingum í svari félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn á 149. löggjafarþingi, á þskj. 1313, 605. mál, nema heildarskerðingar til ellilífeyrisþega vegna lífeyrissjóðstekna 37,556 milljörðum kr. árlega. Eldri borgarar hafa sjálfir sparað fyrir lífeyrissjóðshlutdeild sinni. Lífeyristekjur eru því ekki launagreiðslur sem koma frá vinnuveitendum að starfsaldri loknum. Því felst í skerðingu bótagreiðslna á grundvelli lífeyristekna óbein skerðing á þeim hagsmunum sem eldri borgarar hafa unnið sér inn með vinnu sinni í gegnum tíðina. Það mun, samkvæmt upplýsingum frá félags- og barnamálaráðherra í fyrrnefndu svari, aðeins kosta ríkissjóð 16,075 milljarða kr. í aukin útgjöld árlega ef frítekjumark lífeyristekna verður hækkað upp í 100.000 kr. á mánuði. Það er eðlilegt að almenningur njóti eigin sparnaðar og það er skref í rétta átt að koma á 1.200.000 kr. sérstöku frítekjumarki vegna lífeyristekna.

Í töflu í frumvarpinu má sjá hvaða áhrif framangreindar leiðir hefðu á árlegan kostnað ríkissjóðs við almannatryggingakerfið ef eingöngu er miðað við ellilífeyrisþega. Leið a sýnir árlegan kostnað ríkissjóðs ef hætt yrði við allar skerðingar á ellilífeyri og sú leið sýnir 42 milljarða og 410 milljónir, leið b ef hætt yrði öllum skerðingum almannatrygginga vegna lífeyrissjóðstekna ellilífeyrisþega og sú niðurstaða yrði 37 milljarðar og 556 milljónir og leið c ef ellilífeyrisþegar væru með 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna. Þá eru það um 16 milljarðar.

Að skammta þeim verst settu á lífeyrislaunum frá Tryggingastofnun ríkisins úr krepptum hnefa, bara af því að ríkisstjórnin getur það, sýnir svart á hvítu hvaða óhug hún ber til þessa hóps á lífeyrislaunum frá Tryggingastofnun. Þetta er eitt af mikilvægustu málum Flokks fólksins vegna þess að þetta mál skiptir þann hóp mestu máli sem verst hefur það í lífeyrissjóðskerfinu. Hverjir standa þar verst að vígi? Því miður eru það konur. Það er verið að refsa þeim grimmilega fyrir að hafa verið heima og hugsað um börnin og því lítið á vinnumarkaði og þar af leiðandi með lítinn lífeyrissjóð.

Að segja fólki ár eftir ár og áratugum saman að reyna að lifa á 250.000 kr. á mánuði er ömurlegt og til háborinnar skammar. Það er enn þá meiri skömm þegar sagt er við þá sem veikir eru og eldri borgarar og ná ekki fullum réttindum hjá Tryggingastofnun ríkisins að þeir eigi að lifa jafnvel á undir 250.000 kr. á mánuði. Þá erum við því miður að tala um hóp fólks, sérstaklega vinnandi fólks, sérstaklega kvenna í láglaunastörfum — þær vinna árum og áratugum saman, brenna upp í erfiðisvinnu á lágmarkslaunum. Hvað gerum við svo þegar þessir einstaklingar fara á eftirlaun? Þeir hafa það enn þá verr. Kerfið hefur búið þannig um hnútana að skattar, skerðingar og keðjuverkandi skerðingar valda því að fólk sem hefur ekki getað tórað á sínum vinnulaunum á að reyna að tóra á lífeyrislaunum sem eru jafnvel langt undir fátæktarmörkum og jafnvel helmingi minni en launin voru upphaflega eftir skatta og skerðingar. Þetta er gífurleg óvirðing í garð þessa hóps sem hefur byggt upp Ísland. Á lífeyrissjóðum öryrkja er 38,9% skerðing en ellilífeyrisþegar eru með 45% skerðingu eftir skatt. Hvað þýðir 100.000 kr. frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur? Það þýðir að þeir sem eru á lægstu launum í dag og eru að fara á eftirlaun eiga einhvern möguleika á því að ná upp í eða yfir fátæktarmörk. Er það mikil krafa?

Maður verður eiginlega kjaftstopp, vegna þess að þegar lent er í kerfi skatta, skerðinga og keðjuverkandi skerðinga fer maður að hugsa: Hvernig í ósköpunum var hægt að búa til þetta kerfi? Hverjir fundu það upp? Jú, fjórflokkurinn. Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Samfylking og Vinstri græn hafa alið þetta bútasaumaða skrímsli og nært það vel og vandlega með sköttum og keðjuverkandi skerðingum. Látum vera að þau hafi fundið upp þetta núverandi mannvonskukerfi í góðum tilgangi en að viðhalda því og láta það viðgangast árum og jafnvel áratugum saman er fjárhagslegt ofbeldi af verstu gerð. Er það vegna þess að þeir sem öllu ráða eru búnir að koma sér svo vel fyrir að þeir þurfa engar áhyggjur að hafa af eftirlaunum sínum? Þeir hafa það bara fínt á kostnað þeirra sem þeir dæma til að lifa í fátækt, jafnvel sárafátækt. Ömurlegt. Þá eru þeir búnir að búa til tvöfalt kerfi, jafnréttiskerfi fyrir þá sem hafa það gott og svo sópum við hinum undir teppið og þeir eiga að hafa það skítt eða éta bara það sem úti frýs.

Þá spyr fólk kannski: Af hverju er þetta svona? Málið er einfalt. Þetta er svona vegna þess að þeir flokkar sem hafa verið við völd undanfarin ár og lofað öllu fögru fyrir kosningar svíkja allt eftir kosningar. Þeir segja eitt í stjórnarandstöðu og annað þegar þeir eru komnir í stjórn. Flokkur fólksins er með skýr baráttumál og hvort sem við erum í stjórn eða í stjórnarandstöðu munum við berjast fyrir þeim alltaf, aldrei hvika. Það virðist ekki breyta neinu hverjir eru við völd, nema ef Flokkur fólksins kæmist til valda.

Við sjáum afleiðingarnar. Það eru engar breytingar. Það er skrýtið og líka óvirðing þegar verið er að reyna að verja þessa stöðu með því að segja að þetta séu lífskjarasamningar sem hafi verið samþykktir. Auðvitað er þetta mannanna verk. Þetta er eitthvað sem við höfum búið til. Ef við horfum á hlutina eins og þeir eru og kíkjum aðeins á t.d. stefnumörkun Landssambands eldri borgara í kjaramálum 2023 þá var eftirfarandi meðal þeirra aðgerða sem kallað var eftir í nýrri stefnumörkun:

Almennar aðgerðir sem koma þeim best sem eru með lágar- og miðlungstekjur:

a. Hækkun frítekjumarks úr 25.000 kr. í 100.000 kr. á mánuði.

b. Ellilífeyrir almannatrygginga verði aldrei lægri en lægsti launataxti.

c. Árlegar hækkanir lífeyris og frítekjumarka fylgi launavísitölu.

d. Heimilisuppbót falli undir lög um almannatryggingar svo að hún falli ekki niður við búsetu erlendis.

Er þetta til of mikils mælst? Þetta eru hógværar kröfur. Við skulum líka átta okkur á einu. Það er alveg með ólíkindum í sjálfu sér, þó að við köllum það kostnað ríkisins, að það kosti 16 milljarða að setja á 100.000 kr. frítekjumark. Þetta kostar ekki krónu því að þetta skilar sér til baka. Það er verið að skila til baka með skerðingum, það er verið að skila til baka sparnaði ríkisins. Ríkið er að spara sér með því að taka þessa 16 milljarða af þeim sem eiga þessar lífeyrisgreiðslur. En ef við höldum að þessir 16 milljarðar sé einhver svakaleg tala í þessu samhengi þá skulum við gleyma því, vegna þess að heildarskerðingar í ellilífeyriskerfinu eru í dag nálægt 60 milljörðum kr. Við erum að tala þarna um einn fjórða af heildarskerðingum í kerfinu og erum að biðja þá um að fara eftir hógværum kröfum Landssambands eldri borgara um að fá 25% af þeim skerðingum sem ríkisstjórnir undanfarinna ára hafa komið á. Finnst einhverjum það ofrausn eða að það eigi ekki að vera hægt? Allir flokkar hér á þingi virðast telja að þarna sé verið að krefjast allt of mikils. Það vill enginn taka undir þetta. Hvers vegna ekki? Finnst þeim eðlilegt að heildarskerðingar í almannatryggingakerfinu séu að nálgast 80 milljarða, 80.000 milljónir? Og hvernig koma þessar skerðingar fram? Jú, þær koma þannig fram að þetta er það sem ríkið sleppur við að borga. Og stærsti hlutinn af þessu, við getum bara farið strax í það, er lífeyrissjóðurinn.

Ég hef sent inn fyrirspurnir um hvernig þetta lítur út. Á 151. löggjafarþingi, 2020–2021, voru skerðingar hjá ellilífeyrisþegum, bara vegna lífeyrissjóðs, 50 milljarðar. Í dag eru þær komnar í 51 milljarð og 319 milljónir. Við sjáum nákvæmlega hvar ríkið er að taka af eldri borgurum. Það er að ráðast á lífeyrissjóðinn. Og hugsið ykkur að á sama tíma og enginn flokkur getur stutt að ríkið gefi eftir 16 milljarða og hætti að hirða þá þá erum við með fullt af einstaklingum hérna úti, forríku fólki sem lifir eingöngu á fjármagnstekjum, borgar ekki útsvar og fólki sem þarf ekki á neinn hátt að fara niðurlægjandi för inn til Tryggingastofnunar sem er búið að breyta í refsistofnun, stofnun sem er að refsa fólki. Hellingur af fólki þarf ekkert að fara þarna inn. Þetta fólk verður ekki fyrir neinni skerðingu. Það má vinna eins og það vill án þess að verða fyrir skerðingu. En fólki sem fer inn í þetta kerfi er refsað grimmilega, sama hvað það gerir. Lífeyrissjóðurinn er rifinn af því, vinnulaunin, allt skert.

Láta þeir það duga? Nei, það dugir ekki til. Þeir búa til þannig frábærlega uppsett kerfi að einu sinni á ári, það var 1. ágúst hvers árs, en er núna 1. júlí, kemur skelfingardagurinn, skerðingardagurinn mikli þegar Tryggingastofnun ríkisins ákveður að nú sé búið að uppgötva að einhverjir einstaklingar hafi farið offari, fengið of mikið úr lífeyrissjóði, fengið of miklar tekjur einhvers staðar, fengið of mikla ávöxtun og þeim er sendur reikningurinn. 49.000 einstaklingum er sendur reikningur upp á 8 milljarða kr. Gjörið svo vel og borgið. Meðaltalið er 164.000 kr. Við erum að tala um einstaklinga, sem ég veit um, sem hafa verið með yfir 100.000 kr. endurgreiðslu á mánuði. Spáið í það. Ef þið eruð með 300.000 kr. útborgaðar og þurfið að borga endurgreiðslu upp á 100.000 kr. og þurfið síðan að borga húsaleigu upp á 200.000 kr., hvað er þá eftir? Ekkert, ekkert til þess að lifa af. Þetta er kerfið sem við erum búin að byggja upp.

Þetta er þeirra réttlæti sem er gífurlegt óréttlæti og bitnar langverst á konum. Þær hafa minnstan lífeyri. Konur sem voru heima að hugsa um börnin, líka á vinnumarkaði, fá lágan lífeyri. Og hvað gerir ríkisstjórn eftir ríkisstjórn? Hirðir þennan lága lífeyri, skattar og skerðir hann alveg í spað. Þetta eru skilaboð til kvenna og það eru ágætisskilaboð til kvenna. Í næstu viku er kvennafrídagurinn. Skyldu þessar konur sem eru í ríkisstjórn og aðrar konur hér í þessum þingsal marsera út og krefjast réttinda fyrir konur og krefjast jafnréttis? En af hverju er þær þá ekki á þessu frumvarpi? Er það jafnrétti bara í orði en ekki á borði? Við verðum og eigum að spyrja okkur að því hvers vegna þetta er svona og af hverju þessu er ekki breytt.

Flokkur fólksins er að flytja þetta frumvarp um hækkun fríktekjumarks vegna lífeyristekna í 100.000 kr. í sjötta sinn — sex sinnum. Og allan tímann yppta allir öxlum og vilja ekkert vera með á þessu. Við höfum ein lagt til að tryggja bæði launþegum og lífeyrisþegum um 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust, er það einhver ofrausn? Ég segi bara fyrir mitt leyti: Þeir sem eru að borga 300.000 kr. í leigu, er það ofrausn að fá 400.000 kr.? Eða þeir sem hafa lent í þessu kerfi og hafa trúað bæði ríkisstjórninni og fyrrverandi hæstv. fjármálaráðherra og seðlabankastjóra um lágvaxtalandið Ísland og eru núna með stökkbreytt lán. Ég hef séð fólk með stökkbreytt lán sem hafa farið úr 160.000 í nær 300.000 kr. — tvöföldun. Og fólk spyr bara einfaldlega: Þegar ég hef ekki nema 310.000 útborgað, hvernig í ósköpunum á ég að fara að því að borga þetta? Að þessu spyr líka fólk sem er úti á leigumarkaði. Hvernig í ósköpunum á það að fara að því að borga þessi stökkbreyttu lán og síðan stórhækkaða leigu?

Þá fluttum við enn einu sinni í gær frumvarp um að lífeyrir almannatrygginga fylgi launavísitölu. Hugsið ykkur, við erum með lög og reglur og það voru sett lög þannig að lífeyrir ætti að hækka. Það ber að hækka lífeyrislaun almannatrygginga samkvæmt vísitölu neysluverðs eða samkvæmt launaþróun og það á að nota það sem er hagkvæmara fyrir lífeyrissjóðina. En er það gert? Nei, þeir nota alltaf það sem er hagkvæmara fyrir þá sjálfa, ríkisstjórnina. Við sjáum birtingarmyndina sem kemur langskýrast fram, eins og ég hef margoft sagt — og ég fór meira að segja tvisvar í fyrirspurn við fyrrverandi hæstv. fjármálaráðherra og hann svaraði í hvorugt skiptið. Ég spurði líka félags- og vinnumarkaðsráðherra um þetta og hann svaraði ekki heldur. Hvers vegna í ósköpunum haldið þið að þeir svari ekki þessari einföldu spurningu um það hvers vegna í ósköpunum sé verið að hækka lífeyrislaun almannatrygginga um bara 4,9% um næstu áramót? Og af hverju segi ég bara 4,9% um næstu áramót? Jú, vegna þess að í fjárlagafrumvarpinu stendur skýrum stöfum að það eigi að tvöfalda og festa þá tvöföldu hækkun til frjálsra fjölmiðla og síðan eigi að hækka samkvæmt vísitölu og verðbólgu og launahækkunum. Þeir reiknuðu nákvæmlega út hvað það þyrfti að vera fyrir þessa aðila, 10,6%. Spáið í þetta, 6% meira. Og ég spurði fjármálaráðherra: Hvernig reiknið þið þetta út? Er þetta eitthvert happa og glappa eða dragið þið spil eða hvað gerið þið til að finna þennan rosalega mun, að það sé 4,9% verðbólga fyrir ellilífeyrisþegana en 10,6% verðbólga fyrir frjálsa fjölmiðla og RÚV? Það er himinn og haf þarna á milli. Ég fékk engin svör um það hvernig þeir fóru að því að reikna þetta út.

Þar liggur nefnilega hundurinn grafinn. Þar eru brellurnar sem þeir eru búnir að finna út, að búa til einhverja reikniformúlu. Ég veit ekki hvaða snillingur fann þetta upp. Einhver í ríkisstjórninni hefur fundið upp þá snilldarformúlu að geta reiknað út að verðbólgan sé allt önnur hjá ellilífeyrisþegum og þeim sem minnst hafa heldur en hjá hinum eins og einkareknum fjölmiðlum og þeim sem best hafa það. Þetta sýnir algerlega í hnotskurn einskæran brotavilja ríkisstjórnarinnar, brotavilja til að lemja á því fólki sem er undir fátæktarmörkum og jafnvel sumir í sárafátækt. En þeim er alveg sama, bara að þeir haldi sínu.

Í næstu viku munum við leggja fram frumvarp um að heimilisuppbót falli ekki niður við búsetu erlendis. Spáið í þetta undarlega kerfi okkar. Við erum með fullt af bótaflokkum, við erum með heimilisuppbót, sérstaka uppbót og alls konar styrki og bætur. En ef þessir einstaklingar sem hokra hér á Íslandi og eiga ekki til fæði, klæði eða húsnæði, ráða ekki við það, og vilja ekki, eins og sumir hafa gert, fara bara í hjólhýsi eða í bíl í Laugardalnum eða annars staðar — þau sem voru nú fyrir þar voru send í einhverja gryfju — ákveða og segja: Heyrðu, ég ætla bara að fara erlendis, ég ætla að finna mér land þar sem ég get lifað mannsæmandi lífi á þessum bótum, hvað gerir ríkisstjórnin þá? Þeir eru löngu búnir að setja þarna jarðsprengjusvæði og verja þetta með kjafti og klóm. Þeir taka allar þessar aukabætur af þeim. Auðvitað verður að refsa þessu fólki ef það ætlar virkilega að reyna að koma sér erlendis og reyna að bæta hag sinn. Það gengur ekki upp. Það er bara fyrir útvalda sem hafa efni á því að kaupa sér villur erlendis og þurfa engar áhyggjur að hafa af því að Tryggingastofnun ríkisins sendi þeim einhvern bakreikning eða svipti þá bótum vegna þess að þeir skuli dirfast að ætla að fara erlendis til að reyna að bjarga sér.

Þetta sýnir bara svart á hvítu að fjórflokkurinn er undanfarna áratugi búinn að byggja upp gífurlegt og hrikalegt og ömurlegt skerðingarkerfi, ofbeldiskerfi sem virðist vera sett upp í þeim eina tilgangi að klekkja á þeim verst settu. Upphaflega var þetta kerfi sett á í góðum tilgangi. Við höfum líka dæmi um það, t.d. með sérstöku uppbótina, hún var sett á í góðum tilgangi en þegar hún var strax farin að bíta þá sem hún átti ekki að bíta, var þá eitthvað gert? Nei, ekki svo árum skipti. Svo loksins uppgötvaðist að það væri nú svolítið gróft að hafa krónu á móti krónu skerðingu, að það væri einum of langt gengið, og allir lofuðu því: Tökum þetta af, þetta er bara ofbeldi. Tökum þessa krónu á móti krónu skerðingu burt. Flokkur fólksins er með frumvarp um að afnema þetta hreinlega, bara burt með þessar skerðingar. En þeir fundu leið: Draga úr skerðingunni. Að draga úr var í þeirra huga að færa þetta úr krónu á móti krónu í 65 aura á móti krónu. Þetta höfum við heyrt undanfarið hérna, að þeir ætli að draga úr fátækt, þeir ætli að draga úr skerðingum. Hversu lengi ætla þeir að draga þetta? Tíu ár, 20 ár, 50 ár eða hvað? Hvert er markmiðið? Hvert ætla þeir að draga þetta? Og þegar þeir eru búnir að draga þetta nógu lengi hvað ætla þeir þá að gera? Draga þetta lengur?

Þeir ætluðu sér aldrei að útrýma þessu kerfi eins og við viljum gera. Við viljum taka þetta kerfi í heild sinni og henda því og byggja upp nýtt kerfi algerlega frá grunni, vegna þess að við hlustum á eldri borgara. Við höfum ávallt hlustað á eldra fólk og við gerum okkur fulla grein fyrir því, við sem höfum lifað í þessu kerfi, hversu ómannúðlegt það er, hversu hrikalega ómannúðlegt kerfi þetta er. Við getum ekki verið að byggja upp, eins og ég sagði hérna frá, kerfi þar sem fólk þarf að borga allt að 8 milljarða til baka. Það lendir í því að fá bréf inn um lúguna Tryggingastofnun ríkisins þar sem segir: Heyrðu, þú fékkst greiðslur úr lífeyrissjóði sem við vissum ekki af. Það gengur ekki upp. Við tökum allar bætur af þér frá Tryggingastofnun ríkisins í heilt ár. Spáið í það. Þegar fólk fær svona bréf inn um lúguna hjá sér 1. júlí, þegar skerðingardagurinn kemur, og viðkomandi er með tvö, þrjú börn, er veikur, nýstiginn upp úr stóraðgerðum, þá segja þeir bara: Við náðum þér. Nýbúinn að fá smápening til að lifa af. Nei, þú skalt sko ekki fá að lifa með einhverri reisn. Við ætlum að skella þér aftur niður í fátækt, sárafátækt. Við ætlum að rífa þetta af þér í heilt ár af því að þú dirfðist að borga í lífeyrissjóð og fá greiðslur úr lífeyrissjóði.

Spáið í þetta. Þetta er það kerfi sem við erum búin að byggja upp. Og með því að kjósa fjórflokkinn yfir sig aftur og aftur þá nærið þið þetta kerfi. Þið eruð að næra þetta kerfi og viðhalda því. Það er ömurlegt til þess að hugsa að það skuli vera þannig.

Ég vona heitt og innilega að það sé að koma að því að fólk sé búið að fá nóg. Ég vona að eldri borgarar og öryrkjar þarna úti séu búin að fá nóg og sýni það svart á hvítu í næstu kosningum að svona kerfi vilja þau ekki sjá og styðji Flokk fólksins. Við hendum þessu kerfi, við búum til nýtt kerfi og við byrjum strax á 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Það er enginn vandi að koma því á. Og ef þið talið um það og haldið að þetta sé kostnaður, þessir 16 milljarðar, þá er það alrangt. Við erum t.d. nú þegar, og ég hef ekki heyrt einn einasta bölsótast út af því, með 15 milljarða sem koma inn í fjárlögin í sambandi við flóttafólk. Ókei, gott og vel, það er í lagi en ef við getum það af hverju í ósköpunum getum við ekki sett 16 milljarða í það að leyfa fólki að fá 100.000 kr. og að stærstum hluta konur sem hafa farið út á vinnumarkaðinn, bæði verið vinnandi heima og á vinnumarkaðnum í lítilli vinnu? Nei, það þarf að skatta þær. Það þarf að skerða þessar litlu krónur sem þær fengu.

Við verðum að átta okkur á því að einstaklingur sem er þarna úti og er núna að fara á eftirlaun og er með 500.000 kr. á mánuði má þakka fyrir að fá 250.000 kr. í lífeyrissjóð ef hann hefur unnið í 40 ár. Það er bara rétt rúmlega helmingur af því sem hann var með áður. Og haldið þið að það skili sér í vasa viðkomandi, að hann fái að halda þessari upphæð? Nei, þá byrja skerðingarnar og keðjuverkandi skerðingarnar og skatturinn. Fólk borgaði engan skatt við upphaf staðgreiðslu 1988. Það átti 30% eftir upp í aðra skattgreiðslur. Í dag er þessi sami hópur að borga 40.000–70.000 kr. í skatta. Þetta er skattstefna undanfarinna ríkisstjórna.