154. löggjafarþing — 18. fundur,  19. okt. 2023.

almannatryggingar.

108. mál
[11:41]
Horfa

Flm. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Maður getur oft orðið hissa en nú er ég orðlaus. Við í Flokki fólksins höfum haft eina stefnu. Við styðjum öll góð málefni. Þetta er frábært málefni. Ef þetta er rétt hjá hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni, af hverju í ósköpunum senda þá Píratar út tölvupóst og biðja um að fólk sé á málum? Er það ekki bara óþarfi? Þau gætu sent okkur tölvupóst um að við þyrftum ekki að vera á máli en það væri ágætt ef við kæmum í ræður og styddum það við atkvæðagreiðslu. Eigum við þá ekki öll að hætta að biðja nokkurn um að styðja mál? Hvaða lausn sér hann á þessu? Ég skil ekki svona málflutning. Frá því að ég kom á þing hefur það verið stefna mín frá byrjun að styðja öll góð málefni, sama hvaðan þau kæmu, er varða almenning, eldri borgara, öryrkja og láglaunafólk — allt sem væri gott og ég sæi að gerði einhverjum gott, þótt það væru smáaurar, því að í mörgum tilfellum skipta smáaurar gífurlegu máli fyrir þetta fólk. Þess vegna væri ágætt að spyrja hv. þingmann hvort hann legði þá til að þingmenn hættu að biðja um stuðning við frumvörp og tækju sig til og lýstu honum yfir í ræðu eða við atkvæðagreiðslu.