154. löggjafarþing — 18. fundur,  19. okt. 2023.

almannatryggingar.

108. mál
[11:44]
Horfa

Flm. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég skil þetta ekki — að það sé pínulítið gallað sé nóg til að styðja það ekki. Það verður fróðlegt að sjá hversu veigamikill þessi galli er. Þetta mál er í sjálfu sér afskaplega einfalt. Við erum með 25.000 kr. frítekjumark. Við erum að færa það upp í 100.000 kr. Við erum að hækka það um 75.000 kr. Það skiptir auðvitað gífurlegu máli fyrir þá sem eru þarna úti, sérstaklega þá sem hafa fengið lítinn lífeyrissjóð, sem eru að stærstum hluta konur. Ég segi fyrir mitt leyti að ef einhver galli er á þeirri framsetningu — sem ég sé ekki hvernig á að vera galli — að hækka um þessa upphæð, þá hlýtur gallinn líka að liggja í því að þetta er krafa Landssambands eldri borgara. Þeir hafa ítrekað sett þá kröfu fram að þeir vilja fá þessi frítekjumörk upp í 100.000 kr. og að þau gildi ekki bara fyrir lífeyrissjóðinn, í flestum tilfellum er það lífeyrissjóður, þau gilda líka fyrir allar tekjur. Í tilfelli flestra er þarna um að ræða hækkun á frítekjumarki úr 25.000 kr. í 75.000 kr., held ég. Ég myndi vilja taka þetta algerlega í burtu og hætta þessari djöfulsins frítekjumarkavitleysu og hafa 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Þegar við erum komin yfir meðaltekjur í því launaumhverfi sem viðkomandi var í þegar hann fór á eftirlaun getum við farið að skerða. Við getum séð til þess að fólk haldi nokkurn veginn þeim launum sem það var með þegar það fer á eftirlaun. Það er stefnan. Það er verið að stefna að því en það er langt í land. Það er þetta sem ég myndi vilja sjá en ekki þetta kerfi. Þetta er nauðsynlegt eins og staðan er til að fólk geti lifað með reisn og eigi þó fyrir mat.