154. löggjafarþing — 18. fundur,  19. okt. 2023.

almannatryggingar.

108. mál
[11:51]
Horfa

Flm. (Guðmundur Ingi Kristinsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir þessar útskýringar á því hvers vegna hann gat ekki stutt málið. Það hefur fallið úrskurður frá úrskurðarnefnd velferðarmála í máli nr. 56/2021, miðvikudaginn 15. september 2021:

„Með rafrænni kæru, móttekinni 2. febrúar 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun á beitingu frítekjumarks vegna atvinnutekna um lífeyrissjóðstekjur við útreikning ellilífeyris.“

Ég myndi segja um þessa hnökra sem hann sér á þessu að ég tel þá ekki vera nægilega til að styðja ekki málið vegna þess að við erum að fara fram á það að breyta þessu bútasaumaða kerfi eins og það er í dag. Auðvitað höfum við verið með frumvörp og við styðjum það heils hugar að hætta skerðingum en að taka á móti borgaralaunum upp á 100.000 eða 200.000 kr. í staðinn sé ég ekki virka, ég sé það heldur ekki virka ef það er þannig, eins og mér skilst, að það eigi að virka fyrir alla, sama hvort þeir hafa 200.000 kr. framfærslu eða 20 millj. kr. framfærslu á mánuði. Það gengur ekki upp. Ég segi fyrir mitt leyti að við erum að setja þetta fram til að bæta kerfið eins og það er í dag. Við erum að reyna að fá þessa ríkisstjórn sem er við völd og hefur komið þessu kerfi á og er að reyna að verja kerfið til þess að reyna að skila til baka. Bara þessi 75.000 kr. hækkun á lífeyrissjóði skilar sér ekki bara til ellilífeyrisþega, hún skilar sér líka til örorkuþega. Þetta myndi skila sér gjörsamlega þannig að það fólk sem á ekki fyrir mat í dag (Forseti hringir.) fengi kannski 40.000–50.000 kr. meira og það, fyrir þetta fólk í dag, skiptir sköpum, sérstaklega fyrir þá sem eru í sárafátækt.