154. löggjafarþing — 18. fundur,  19. okt. 2023.

almannatryggingar.

108. mál
[11:53]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er einfaldlega rangur úrskurður. (Gripið fram í.) Það er einfaldlega þannig. Ég átta mig fullkomlega á því að lögin um almannatryggingar eins og þau áttu að vera eru eins og framkvæmdin er núna. En það er galli í lögunum. það vantar einfaldlega þessa heimild til að undanþiggja lífeyrissjóðsgreiðslur frá því að vera atvinnutekjur. Staðan er þannig. Við fengum fjármálaráðuneytið á sameiginlegan fund undirnefnda velferðarnefndar og fjárlaganefndar á síðasta þingi þar sem var verið að reyna að grafast aðeins fyrir um þetta og svörin sem við fengum frá fjármálaráðuneytinu þegar einfaldlega var spurt: Hvar er undanþágan? — þau fengust ekki. Það var ekki hægt að finna hana. Ég er búinn að reyna að ýta aðeins á eftir velferðarnefnd núna að halda áfram þessu máli. En það gengur allt á snigilshraða hérna. En þetta er staðan eins og hún er núna. Þessir úrskurðir eru rangir, það er einfaldlega þannig, alla vega þangað til að það tekst að sýna það skýrum stöfum að undanþágan sé til staðar. Það ætti að vera auðvelt ef hún er þar en það hefur ekki verið gert enn þá þannig að ég dreg þá ályktun að hún sé ekki þar fyrst það hefur ekki verið möguleiki á að sýna fram á hana. Það er mjög einfalt. Svo segir hv. þingmaður að þetta nægi ekki til að styðja ekki málið. Aftur: Það er hægt að styðja málið á fjölmargan hátt. Það er hægt að vera meðflutningsmaður, það er hægt að vera með ræðu og það er sérstaklega hægt í atkvæðagreiðslu og þar skiptir það máli. Þar setur maður orð á borð og sýnir það í verki. Ég geri athugasemd og þar sem ég er ekki meðflutningsmaður þá er það túlkað þannig að ég sé ekki sammála málinu. Það er það sem Flokkur fólksins hefur sagt. (Forseti hringir.) Það er það sem ég kvarta undan. Vinsamlegast hættið því.