almannatryggingar.
Forseti. Ja, mér finnst vera nærtækara að berjast fyrir því að það sé farið eftir lögunum eins og þau eru í dag sem þýðir þá frítekjumark upp á 2,4 milljónir á ári fyrir lífeyrissjóðsgreiðslur og atvinnutekjur að vísu saman. Það er alla vega mín skoðun á því hvernig væri hægt að ná betur markmiðum þessa frumvarps því að við vitum hvernig þingmannafrumvörp fara hérna í gegnum þingið, á ekkert rosalega málefnalegan hátt. Það er bara eins og það gengur.
Spurningin sem hv. þingmaður svaraði var gríðarlega viðamikil, ef við getum orðað það þannig, engin smáræðis breyting á í rauninni fyrirkomulaginu eins og það er. Deilan núna snýst í rauninni um það hvort það varð eðlisbreyting á lífeyrissjóðakerfinu á ákveðnum tíma eða ekki, því að upprunalega var það sett þannig að það voru tryggingar, almannatryggingar, það var enginn lífeyrissjóður. Svo var settur lífeyrissjóður sem væri alltaf bara þá til viðbótar í rauninni við almannatryggingarnar. En svo er gerð breyting í rauninni þar sem almannatryggingarnar — deilan snýst um þetta, hvort breytingin sem var gerð síðar væri á þann hátt að almannatryggingarnar myndu fasast út og lífeyrissjóðir myndu koma algjörlega í staðinn fyrir almannatryggingakerfið. Ef lífeyrissjóðakerfið á að koma alveg í staðinn fyrir tryggingakerfið þá erum við í þeim fasa núna að brúa bilið á milli þeirra sem hafa ekki tekið þátt í lífeyrissjóðakerfinu alveg frá því að þeir hófu störf. Í rauninni er tryggingakerfið að fylla upp í það sem viðkomandi hefði verið með sem lífeyri úr lífeyrissjóðakerfinu ef hann hefði greitt í það frá upphafi. En deilan snýst um hvort það eru enn þá fyrstu skilyrðin um að lífeyrisgreiðslur væru til viðbótar við almannatryggingar eða ekki og ég held að við þurfum að leiða það aðeins í jörð hvort svo sé. (Forseti hringir.) Ég held að svo sé ekki.