almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég er meðflutningsmaður á frumvarpi þessu um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum, frítekjumark vegna lífeyristekna, líkt og allur þingflokkur Flokks fólksins. Þetta er mjög einfalt mál sem við erum að leggja fram og fara fram á, sem er einfaldlega að lífeyrisþegi skuli hafa sérstakt frítekjumark vegna lífeyristekna sem nemur 1.200.000 kr. á ári, 100.000 kr. á mánuði. Það er mjög mikilvægt að það sé ekki verið að refsa fólki sem greiðir í lífeyrissjóð og hefur látið ávaxta fé sitt í lífeyrissjóði sínum, að það sé ekki verið að refsa þeim ef það fær góðar lífeyristekjur með því að þá skerðist almannatryggingar. Hér er um óbeina skerðingu á hagsmunum að ræða sem eldri borgarar hafa áunnið sér í gegnum tíðina með vinnu sinni. Það er nánast verið að refsa þeim fyrir að vera í góðum lífeyrissjóði og hafa verið svo forsjál að greiða alltaf í lífeyrissjóð. Það gengur ekki í núverandi kerfi. Ríkisvaldið getur ekki sagt við fólk sem er búið að greiða skatt alla sína tíð að það ætli að skerða almannatryggingar vegna þess að fólk er búið að greiða í lífeyrissjóð. Það gengur ekki upp. Það er mikið óréttlæti falið í því.
Þær sögur sem ég hef heyrt sjálfur út af Tryggingastofnun ríkisins varðandi bakreikninga eru hreint og beint með ólíkindum, sérstaklega þegar fólk hefur aflað sér atvinnutekna. Ég minnist þess að við í þingflokki Flokks fólksins vorum á Austfjörðum og áttum góðan fund á Vopnafirði. Þar hittum við konu sem var 88 ára gömul og hún talaði um óréttlætið í almannatryggingunum þegar hún fékk bakreikning upp á 400.000 kr. ári eftir að hún hafði verið að vinna við sérkennslu. Hún þurfti að greiða 400.000 kr. vegna þessa bakreiknings vegna skerðinganna. Það er mikilvægt að hafa það í huga líka að almennt frítekjumark er mjög lágt í sögulegu samhengi.
Markmið þessa frumvarps er að auka sanngirni í almannatryggingakerfinu og hvetja til sparnaðar lífeyrisþega með því að draga úr skerðingum. Það er mjög mikilvægt að það sé hvati til staðar fyrir fólk að greiða í lífeyrissjóð, að fólk sjái tilgang með því en upplifi ekki skerðingar um leið og það fer að fá greiðslur úr lífeyrissjóði, skerðingar í almannatryggingakerfinu. Það mun draga úr þessum hvata til sparnaðar í lífeyrissjóðakerfinu og það getur haft mjög alvarlegar afleiðingar vegna annarra lífeyrisgreiðslna líka. Við búum við ágætislífeyriskerfi að mörgu leyti en það eru stórkostlegir gallar á því, bæði er skortur á lýðræði og svo virðist vera að þessi skortur á lýðræði hafi leitt til þess að jafnvel ávöxtun hafi ekki verið sem skyldi og nægir þar að nefna hvernig ástandið var í hruninu.
Það sem er vandamálið hérna er það að við erum með kerfi, þegar við horfum á almannatryggingar ríkisins, sem er eins konar fátækrahjálp. Það gengur út á að refsa fólki sem aflar sér atvinnutekna, aflar sér aukinna tekna með atvinnutekjum og sýnir forsjálni með því að greiða í lífeyriskerfið. Þetta er líka hlutur í baráttunni gegn fátækt sem er eitt helsta baráttumál Flokks fólksins. Fólk á rétt á almannatryggingum samkvæmt lögum en ríkið hefur ekki staðið við sinn hluta. Þar má nefna þessa kjaragliðnun en frá 2003 hefur hún verið 65% af greiðslum almannatrygginga og nemur tugum prósenta frá hruni. Hugsið ykkur, 65% bara frá 2003. Eitt af forgangsmálum Flokks fólksins er einmitt þetta.
Hér á vefsíðu okkar segir, með leyfi forseta: „Við ætlum að hækka frítekjumark ellilífeyris vegna lífeyristekna frá 25.000 kr. upp í 100.000 kr.“ Þetta er kjarnamál okkar, eitt af forgangsmálum Flokks fólksins þegar kemur að því að gera efri árin að gæðaárum. Önnur mál sem eru undir þessum málaflokki, að gera efri árin að gæðaárum, eru: Efri árin eiga hvorki að vera fátæktargildra né kvíðaefni og að við munum leggja niður skerðingar á ellilífeyri vegna atvinnutekna. Þetta er í rauninni bara annar hluti sem lýtur að lífeyristekjum og svo er það sérstakt mál sem lýtur að atvinnutekjum.
Ég vil benda á varðandi kostnað við frumvarpið að við erum með töflu í frumvarpinu sem sýnir hvaða áhrif framangreindar leiðir hefðu á árlegan kostnað ríkissjóðs við almannatryggingakerfið ef eingöngu er miðað við ellilífeyrisþega. Leið a sýnir árlegan kostnað ríkissjóðs ef hætt yrði við allar skerðingar á ellilífeyri, leið b ef hætt yrði öllum skerðingum almannatrygginga vegna lífeyrissjóðstekna ellilífeyrisþega og leið c ef ellilífeyrisþegar væru með 1.200.000 kr. sérstakt frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna. Við erum eingöngu að tala um leið c í þessu máli og samanlagður kostnaður vegna ellilífeyris er rúmir 14 milljarðar og með heimilisuppbót og eingreiðslum eru þetta um 16 milljarðar. Ég get tekið dæmi. Við erum að eyða öðru eins í alþjóðlega vernd. Við vorum með fyrir örfáum árum 500 milljónir í útgjöld vegna þessa málaflokks og núna erum við komin upp í 16 milljarða. Þetta er málaflokkur sem er kominn út í algera vitleysu. Það má taka fleiri dæmi.
Þetta er gríðarlegt réttlætismál hjá stórum hluta fólks. Það á ekki að þurfa að hlíta þessum skerðingum með nokkrum einasta hætti vegna þess að það hefur verið það forsjált að greiða í lífeyrissjóð. Ég tel að þetta sé mjög mikilvægt mál og er eitt af forgangsmálum Flokks fólksins hér á þingi.