154. löggjafarþing — 18. fundur,  19. okt. 2023.

skattalegir hvatar vegna launa keppnis- og afreksíþróttafólks.

63. mál
[12:47]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um skattalega hvata vegna launa keppnis- og afreksíþróttafólks. Ég vil byrja á því að segja að ég fagna þessari tillögu sérstaklega og þakka flutningsmanni fyrir frumkvæðið og ræðuna hér í dag. Eins og hann kom inn á hefur þessi tillaga áður verið lögð fram og þar sem það vill þannig til að ég er ekki á tillögunni að þessu sinni vil ég taka það fram að ég styð hana og ég var á henni þegar hún var lögð fram á síðasta þingi.

Afreksíþróttafólk okkar er auðvitað svolítið djásnið í krúnunni. Okkur hefur gengið gríðarlega vel á undanförnum árum að hlúa að íþróttastarfi á Íslandi. Eins og flutningsmaður kom réttilega inn á hefur sú umgjörð verið að batna verulega, ekki síst vegna þess að ríki og sveitarfélög hafa verið að styðja betur við málaflokkinn. En betur má ef duga skal og hér er komin fram tillaga þar sem lagt er til að skattalegir hvatar verði nýttir til að aðstoða atvinnulífið til að styðja við afreksíþróttafólkið okkar og ég held að það sé svo sannarlega vel.

Það er gríðarlega kostnaðarsamt fyrir þetta ágæta fólk að iðka sínar íþróttir og það hafa verið fréttir af því á undanförnum árum þar sem sá kostnaður hefur hlaupið á milljónum. Það er vert að nefna það og það er aðdáunarvert hjá þeim atvinnurekendum sem hafa stutt við bakið á okkar afreksíþróttafólki með því að veita svigrúm til þess að það ágæta fólk hafi getað æft og farið til keppni. Það er eitt af því sem manni flögrar í hug, hvernig sé hægt að kannski ýta enn frekar undir það í ljósi þess að ég veit dæmi um það sem atvinnurekendur hafa átt í erfiðleikum með, fyrst og fremst bara vegna þess að þeir hafa veigrað sér við því að ráða þetta ágæta og öfluga fólk í vinnu. Þarna er þó alla vega komin einhver hvati til þess. Þó að þetta sé auðvitað bara púsl í heildarmyndinni þá er þetta mikilvægt púsl sem ég vonast til þess að við klárum hér.

Flutningsmaður fór í sínu máli yfir þá vinnu sem á sér stað hjá ráðuneyti málaflokksins. Ég ber auðvitað mikla miklar vonir til þess að sú vinna skili sér og þetta ágæta mál verði tekið þar inn. Það hefur verið bent á almannaheillafélögin og við höfum staðið okkur vel þar. En það vill bara þannig til að á Íslandi er alveg gríðarlega stór hópur sem tilheyrir svokölluðum þriðja geira. Ég fullyrði það að örugglega — við erum nú alltaf að bera okkur saman við einhverja höfðatölu — er hlutfallslega ekkert land í heiminum þar sem eins margir sinna slíku starfi, og íþróttafélögin og íþróttastarf á Íslandi, leyfi ég mér að segja, er hvað stærst þar. Ég held að íþróttahreyfingin á Íslandi sé fjölmennasta hreyfing landsins. Hún teygir anga sína inn á öll heimili landsins og það er vissulega þjóðarstolt sem fylgir því þegar okkur gengur vel, bæði innan lands sem utan.

Forseti. Mig langar kannski aðeins að minnast á þessa umgjörð og það stendur kannski upp úr hvernig önnur lönd hafa verið að nýta skattalega hvata í alls kyns tilgangi. Við erum að glíma við mjög marga og flókna málaflokka á þingi og skattalegir hvatar hafa verið notaðir til að kaupa hlutabréf, ýta undir það, til að ýta undir græn orkuskipti og svo má lengi telja. Þessi stóri og veigamikli lýðheilsuþáttur á sannarlega að falla þar undir því að börnin og ungmennin okkar horfa til afreksíþróttafólks sem fyrirmynda. Við höfum verið svo lánsöm að eiga gríðarlega flottan og stóran hóp afreksíþróttafólks sem hefur sannað sig. Þetta eru þær fyrirmyndir sem við viljum tryggja, ýta undir og styðja. Lengi býr að fyrstu gerð. Okkar unga fólk þarf að sjá fram á það að ef þeim lánast að halda áfram sinni íþróttaiðkun þá sé ekki fjárhagsleg hindrun eða einhverjar slíkar hindranir á vinnumarkaði sem geti gert það að verkum að þau geti ekki náð sínum árangri. Það er gríðarleg vinna sem fer í það að ná árangri, þetta er ofboðslega mikil vinna tímalega séð og þess vegna held ég að þetta sé virkilega brýnt mál. Ég fagna því, ég ætla ekki að hafa tölu mína lengri, ég styð málið þó að það vilji þannig til að ég sé ekki meðflutningsmaður. Ég vildi að það kæmi alveg skýrt fram og vonast til þess ásamt flutningsmanni og þeim sem eru á málinu að það nái fram að ganga.