154. löggjafarþing — 19. fundur,  24. okt. 2023.

kvennaverkfall.

[13:32]
Horfa

Forseti (Ásmundur Friðriksson):

Í dag er fjöldi kvenna á Íslandi í verkfalli og kemur saman víða um land til að krefjast þess að kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi verði útrýmt og að störf kvenna og kvára verði metin að verðleikum. Þingkonur eru þar á meðal og því eru 2.–9. mál tekin af dagskrá þessa fundar.