154. löggjafarþing — 19. fundur,  24. okt. 2023.

fátækt kvenna.

[13:37]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Um leið og ég vil óska konum innilega til hamingju með daginn þá vil ég benda á að það eru konur sem fara verst út úr örbirgð og því að geta ekki mætt grunnþörfum sínum, sem er skilgreiningin á fátækt. Menntaskortur, næringarskortur, heilsubrestur og að vanta fæði, húsnæði og klæði er ekkert annað en sárafátækt. Skortur á heilbrigðisþjónustu, hollum mat og mannsæmandi húsnæði er önnur birtingarmynd fátæktar. Samfélagslegur kostnaður vegna fátæktar er mikill í formi heilsubrests með tilheyrandi kvíða og vanlíðan.

Einstæðar mæður og einstæðar mæður sem líka eru öryrkjar eru þær konur sem verst standa í okkar ríka samfélagi. Ævilíkur fólks, sérstaklega ævilíkur kvenna sem búa við viðvarandi fátækt, voru metnar með könnun sem gerð var í Bretlandi 2001–2016. Þar kom fram að dauðsföll vegna fátæktar eru mörg og þá sérstaklega meðal kvenna. Munurinn á milli kvenna sem lifa við fátækt í Bretlandi og þeirra sem lifa við velmegun er tíu ár og bilið eykst. Konur sem lifa við fátækt lifa að meðaltali tíu árum skemur en þær sem eru efnameiri og deyja úr sjúkdómum sem auðvelt væri að meðhöndla ef þær hefðu efni á að skila sér til læknis, sem hæstv. heilbrigðisráðherra mætti íhuga.

Haldið þið að þetta sé eitthvað öðruvísi hér á landi? Nei, heilsutjón vegna lélegs fæðis, fæðuskorts eða annarra líkamlegra óþæginda, t.d. vegna þunglyndis, vonleysis og þeirra veikinda hjá konum, er oft meðhöndlað sem breytingaskeið eða móðursýki og er að valda því sama hér á landi. Fátækar konur lifa nær tug ára skemur en þær efnameiri. Þetta má yfirfæra á þær konur sem eru í láglaunastörfum, slíta sér út og enda síðan sem öryrkjar vegna heilsubrests. Hvað er hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra að gera til að koma í veg fyrir þetta og hvernig ætlar hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra að útrýma allri mismunun gagnvart konum?