umframdauðsföll.
Herra forseti. Ég vil við þetta tilefni beina fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra. Hún varðar það sem ég ræddi við hæstv. ráðherra í febrúar síðastliðnum sem kom fram í tölfræðiupplýsingum Hagstofunnar, þess efnis að hér á landi væru umtalsverð umframdauðsföll umfram það sem gerðist í nágrannalöndum okkar. Hæstv. ráðherra svaraði mér því til, með leyfi forseta, að hann þyrfti að „eiga þetta samtal og spyrja sömu spurninga á okkar næsta fundi,“ — og vísaði þar í fundi með embættismönnum — „við eigum fasta fundi, ég og sóttvarnalæknir, en ég hef ekki náð að taka þetta mál sérstaklega upp við sóttvarnalækni.“
Þetta var í febrúar. Nú sýnist mér nýjustu upplýsingar sem Hagstofan hefur tekið saman vera síðan í maí síðastliðnum. Þar virtist sama þróun halda áfram. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvað samtölin við embættismennina hafa leitt í ljós, hvort verið er að vinna einhverjar dýpri greiningar heldur en koma fram í þessum upplýsingum frá Hagstofunni og hvort verið er að reyna að leggja mat á hvað veldur. Í þessu samhengi er nauðsynlegt að nefna það sem ég kom inn á í störfum þingsins í liðinni viku þar sem ég vísaði til greinar Helgu Birgisdóttur hjúkrunarfræðings og ljósmóður sem varaði við þeirri þróun sem virtist blasa við, að fólk sem kveinkaði sér undan því sem það teldi mögulega vera tengt bólusetningum vegna Covid fengi ekki áheyrn gagnvart sínum vandamálum. Hjúkrunarfræðingurinn benti þar sömuleiðis á þróun hvað varðar það sem segir hér, með leyfi forseta:
„Ég spyr ykkur hjúkrunarfræðinga og ljósmæður hvort einhver umræða sé í gangi varðandi 80% aukningu á andvana fæðingum á Íslandi árið 2021 …“
Sömuleiðis er vísað þar til fjölgunar í andlátum barna innan eins árs þetta sama ár.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Er verið að greina þetta að einhverju marki inn í ráðuneytinu og hvað leiddu samtölin sem ráðherra átti við embættismenn sína í ljós í byrjun árs eftir samtal okkar hér á þessum vettvangi í febrúar?