umframdauðsföll.
Hæstv. forseti. Ég ítreka þakkir til hv. þm. Bergþórs Ólasonar. Aðeins til að ljúka þessu varðandi umframdauðsföllin — og ég skil hv. þingmann, hef skilning á því að fá þetta fram — það er búið að birta þetta á vef landlæknis og landlæknir er í sambandi við Hagstofuna um að leiðrétta þetta. Bara til að reyna að svara þessu hér og draga fram myndina af þessu þá er aukning dauðsfalla innan mánaðar í jafn litlu samfélagi — miðað við þessar tölur er ekki ástæða til að draga neinar sérstakar ályktanir eins og niðurstaðan er. En það er sjálfsagt mál að skoða þetta og ég veit að landlæknir er í samvinnu við Hagstofuna um að draga þetta fram. En það er hægt að finna þessar nýjustu tölur inn á vef landlæknis.
Varðandi andvanafæðingar þá er fæðingarþjónusta á Ísland í alþjóðasamanburði með því besta sem gerist. Þá fór ég hér yfir tölur af því að þessi spurning var búin að koma inn í ráðuneytið (Forseti hringir.) og það er sjálfsagt mál að skoða í samvinnu við landlækni að hlutfall andvanafæðinga sem hlutfall af heildarfæðingum var 0,24% 2020, 0,19% og 0,34% 2021, en þá var fjöldinn mestur. (Forseti hringir.) Það er reyndar hlutfall en það er ekki þannig frávik í þessu að það gefi tilefni til að draga neinar ályktanir en sjálfsagt mál að skoða.