154. löggjafarþing — 19. fundur,  24. okt. 2023.

kvennastéttir og kjarasamningar.

[14:00]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég ítreka þakkir til hv. þingmanns fyrir þessa fyrirspurn sem er stór og mikilvæg, ég tala nú ekki um á þessum degi. Ég tek undir það með hv. þingmanni að það er mjög mikilvægt að við sköpum góðar og meira en viðunandi starfsaðstæður sem eru eftirsóknarverðar. Ég held að það sé unnið að því á öllum póstum í öllum stofnunum og þar með talið í ráðuneytinu og með öllum þeim ólíku stéttum sem bera uppi heilbrigðiskerfi okkar. Ég get nefnt sem dæmi að við erum oft að ræða hér fjármögnun og stór hluti af því sem við fjármögnum heilbrigðiskerfið með og allt sem snýr að rekstri — 80% af því sem snýr að rekstri í fjárlögum eru laun. Þetta er stærsti pósturinn og þessi þjónusta verður ekki í lagi án mannauðsins. Við í ráðuneytinu erum núna að vinna í því til að við getum glöggvað okkur betur á því hvaða viðmið eigi við (Forseti hringir.) þegar við erum að manna ólíkar vaktir í ólíkri þjónustu á ólíkum stofnunum. (Forseti hringir.) Það finnst mér vera eitt af því sem kannski helst vantar upp á þannig að við getum boðið mannsæmandi starfsaðstæður (Forseti hringir.) og verið með einhver örugg viðmið þegar við erum að fjalla um það og fjalla um fjármögnunina á móti. (Forseti hringir.) Þessi vinna fer fram í ráðuneytinu núna gagnvart þessum stóru og mannmörgu stéttum.