154. löggjafarþing — 19. fundur,  24. okt. 2023.

stefna og aðgerðir í fíknimálum.

[14:02]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Þessi dagur er auðvitað tileinkaður baráttunni gegn kynbundnum launamun og kynbundnu ofbeldi og ég óska samfélaginu svo sannarlega góðs gengis í því að útrýma hvoru tveggja. Í fyrirspurn minni til hæstv. heilbrigðisráðherra vil ég vekja athygli á vímuefnavandanum, fíknisjúkdómnum, og nefna í upphafi að sá sjúkdómur leggst auðvitað sérlega þungt á konur. Félagsleg staða kvenna í neyslu er oft verri en karla. Þær eru útsettari fyrir ofbeldi, hótunum og hvers kyns óhæfuverkum. Þær þurfa oft meiri meðferð og meiri áfallavinnu í kjölfar þess að ná lífi sínu á réttan kjöl. Ég vildi hafa það til hliðsjónar þegar ég á orðastað við hæstv. heilbrigðisráðherra og vekja athygli á grein sem Alma Möller landlæknir skrifaði á dögunum. Þar var Alma að nefna, með leyfi forseta, að „mikilvægt væri að hafa rauntímavöktun á umfangi vandans og skörp viðbrögð til samræmis. Til þess þyrfti aðkomu margra ráðuneyta, stofnana og félagasamtaka. Því lagði landlæknir til við heilbrigðisráðherra í maí sl. að komið yrði á fót slíkum hópi sem t.d. mætti kalla Fíknivaktina. Fundir væru reglulega undir stjórn sérstaks verkefnastjóra og væri nefndinni falin vöktun, greining á stöðu mála hverju sinni og hefði nefndin nauðsynlegar heimildir til að gera hlutaðeigandi stofnunum að bregðast hratt við eftir þörfum.“

Nú er það þannig að við erum með meðferðarstarf sem Vogur og SÁÁ sinna, þ.e. annars vegar sjúkrahúsið Vogur og hins vegar eftirmeðferðarstöðin Vík. Við erum auðvitað með Krýsuvík sem er með fólk í meðferð í sex mánuði eða jafnvel lengur og Hlaðgerðarkot í þrjá mánuði eða lengur. Það er hins vegar mikil bið eftir því að komast í þessar meðferðir. Alma Möller nefnir líka í grein sinni að það var til stefna í áfengis- og vímuefnavörnum sem var í gildi frá 2013–2020 og embætti landlæknis hefur margítrekað nauðsyn þess, bæði við heilbrigðisráðuneytið og velferðarnefnd þingsins, að setja nýja og heildstæða stefnu um þennan flókna málaflokk.

Mig langar því að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort einhver vinna sé í gangi í ráðuneytinu, t.d. varðandi þetta sem snýr að fíknivaktinni sem ég nefndi hér áðan (Forseti hringir.) og svo stefnu hvað varðar þennan sjúkdóm til lengri tíma.

(Forseti (ÁsF): Forseti minnir á að ræðutími er tvær mínútur.)