stefna og aðgerðir í fíknimálum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir svarið. Það er auðvitað alveg rétt sem hæstv. ráðherra kemur inn á. Það er stundum þannig að þegar hlutirnir standa okkur nærri, annaðhvort út af ábyrgð sem við berum eða út af því að við þekkjum einhvern veikan í fjölskyldunni, þá kannski nær málaflokkurinn sterkari tökum á okkur. Það er auðvitað þannig að fíknivandinn teygir sig nánast inn í alla kima samfélagsins, inn í allar fjölskyldur og alla hópa. Þetta er, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, mjög flókinn vandi. Það er mjög erfitt að bregðast við honum. Það sem ég hef alltaf verið að benda á er að þegar það er svona mikil bið t.d. eftir því að koma í meðferð getur það orðið til þess að fólk fer ekki í meðferð og deyr mögulega úr sjúkdómnum fyrir vikið.
En ég ætla að fá að botna þetta með því að árétta spurninguna til hæstv. heilbrigðisráðherra og dýpka hana aðeins: Má slá því föstu, miðað við það sem hæstv. ráðherra vísaði til, að við sjáum eitthvað sem gæti kallast fíknivakt verða að veruleika á þessu kjörtímabili og að þetta þing, Alþingi Íslendinga, gyrði sig í brók og móti stefnu í þessum málaflokki, heildræna stefnu til lengri tíma, á þessu kjörtímabili?