kynjajafnrétti í þróunarsamvinnu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ísland hefur sýnt gott fordæmi í sinni þróunarsamvinnu og hvernig við beitum okkur milliliðalaust til þeirra sem aðstoðinni er beint að í vel skilgreindum verkefnum með skýr markmið. Það gerum við og eigum að gera með uppbyggilegum hætti og af virðingu fyrir samfélagi og menningu þeirra þjóða sem við vinnum með en um leið með mikilvægi kynjajafnréttis að leiðarljósi. Hvernig sér hæstv. utanríkisráðherra fyrir sér að hægt sé að skerpa enn frekar á þeim markmiðum í forgangsröðun verkefna í þróunarsamvinnu og hvernig getum við á kvikan hátt fylgt þeim eftir með sem farsælustum hætti?