kynjajafnrétti í þróunarsamvinnu.
Virðulegi forseti. Við sjáum fyrir okkur að leggja sérstaka áherslu á baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi og sömuleiðis á heilbrigði kvenna og stúlkna, þar á meðal kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi. Menntun skiptir líka máli, efnahagsleg og pólitísk valdefling kvenna og aukin þátttaka karla og drengja í jafnrétti kynjanna. Þetta eru dæmigerð verkefni þar sem við höfum verið að beita okkur og viljum áfram leggja sérstaka áherslu á. Við erum í samstarfi við þessar stofnanir sem ég hef þegar nefnt en ég hefði einnig getað bætt við stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, UN Women, sem hefur það meginmarkmið að vinna að jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna. Í tvíhliða þróunarsamvinnunni er lögð rík áhersla á aðgengi stúlkna að grunnmenntun og heilbrigðisþjónustu og aukinn þungi hefur á undanförnum árum verið lagður í að styðja við frjósemisheilbrigði og kynheilbrigði og réttindi stúlkna í samstarfslöndum Íslands, t.d. með öflugu samstarfi við UNFPA um stuðning við þolendur fæðingarfistils.