154. löggjafarþing — 20. fundur, 25. okt. 2023.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá mennta- og barnamálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 233, um úrræði fyrir börn með alvarlegan hegðunarvanda eða geðvanda, frá Evu Sjöfn Helgadóttur. Einnig hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 293, um fylli- og leysiefni vegna fegrunarmeðferða, frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.