Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Á síðustu vikum hef ég átt samtöl við fólk í þriðja geiranum, aðallega í stafni félagasamtaka og einstaklinga í samfélagslegri nýsköpun. Þriðji geirinn á Íslandi lyftir grettistaki á hverjum degi en þarf samt að berjast í bökkum. Þarna starfa óhagnaðardrifin félagasamtök sem sinna nauðsynlegri þjónustu sem ríkið býður ekki upp á. Mikil fjárhagsleg og samfélagsleg verðmæti myndu tapast ef þeirra nyti ekki við. Þrátt fyrir það búa þau mörg við skammtímastyrki og skortir fyrirsjáanleika til þess að geta náð sem mestum áhrifum fyrir samfélagið. Undanfarin ár í Evrópu hefur borið meira á svokölluðum félagslegum fyrirtækjum, á ensku, með leyfi forseta, „social enterprises“. Meginmarkmið slíkra fyrirtækja er að vinna í þágu samfélagsins fremur en að skila hagnaði til eigenda og fjárfesta. Félagsleg fyrirtæki geta verið samkeppnishæf á markaði og veitt þjónustu og á sama tíma unnið að samfélagslegum lausnum. Þau geta skapað verðmæti og veitt jaðarsettum hópum rödd, komið með nýjar leiðir til að mæta áskorunum í umönnun aldraðra eða tekið á vanlíðan ungmenna. Þrátt fyrir að hér á Íslandi séu starfrækt mörg félög sem falla undir þennan flokk höfum við enn sem komið er ekki góða og haldbæra skilgreiningu á þeim. Starfsumhverfið og launaumgjörðin eru ekki skýr og í rauninni ekki til. Möguleg rekstrarform hérlendis eru því fjölbreytt og flókin og verða slík verkefni t.d. að almannaheillafélögum, einkahlutafélögum eða sjálfseignarstofnunum. Slíkt rekstrarform getur hentað ákveðnum hugmyndum en öðrum færi betur að starfa sem félagslegt fyrirtæki. Félagslegar framfarir munu ekki eiga sér stað nema fólk, samtök og fyrirtæki sem standa að samfélagslegri nýsköpun séu raunverulega studd í sínum verkefnum. Umræðu um samfélagslega nýsköpun og félagsleg fyrirtæki þarf að halda á lofti hérlendis. Sýnileiki félagslegra fyrirtækja er orðinn töluvert meiri á Norðurlöndunum og regluverkið í Evrópu orðið skýrara. Ef við viljum að Ísland verði hluti af þessari þróun en ekki eftirbátur annarra landa þurfum við að gefa í.