154. löggjafarþing — 20. fundur,  25. okt. 2023.

velferð dýra.

12. mál
[16:30]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um velferð dýra, nr. 55/2013, bann við blóðmerahaldi. Með mér á frumvarpinu er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins, það eru þau Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson. Einnig áskotnaðist okkur liðsauki frá Pírötum, hv. þm. Andrés Ingi Jónsson er einnig með okkur á þessu frumvarpi. Það skal tekið fram að öllum þingmönnum, kjörnum fulltrúum, hvort sem þeir eru ráðherrar eða þingmenn, var boðið að vera með okkur á þessu máli og ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir að sýna því umhyggju.

Lagt er til að 1. gr. hljóði svo:

Á eftir 2. mgr. 20. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

Bannað er að taka blóð úr fylfullum merum í þeim tilgangi að selja það eða vinna úr því hormónið PMSG (Pregnant Mare Serum Gonadotropin) eða nokkra aðra vöru til sölu.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 45. gr. laganna:

a. Á eftir c-lið 1. mgr. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: hann brýtur gegn bannákvæðum skv. 20. gr.

b. 6. mgr. fellur brott.

3. gr. hljóðar svo: Lög þessi öðlast þegar gildi.

Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:

Frumvarp þetta var lagt fram á 151., 152. og 153. löggjafarþingi (53. mál) en náði ekki fram að ganga og er nú lagt fram að nýju óbreytt. Sem sagt, við erum að koma fram með málið eina ferðina enn. Alls bárust 24 umsagnir um málið á 153. löggjafarþingi. Jafnframt barst fordæmalaus fjöldi umsagna um málið á 152. löggjafarþingi, alls 137 og skal þess getið að þá voru líka send einhver hundruð umsagna til Umhverfisstofnunar. Einnig barst Alþingi undirskriftalisti þar sem 6.380 manns kölluðu eftir því að blóðmerahald yrði bannað. Meðal umsagnaraðila voru dýraverndunarsamtök, bæði innlend og alþjóðleg, dýralæknar, stjórnvöld, blóðmerabændur, almennir borgarar og fyrirtækið Ísteka. Ekki er hægt að fara í saumana á öllum þeim umsögnum sem bárust en rauði þráðurinn í afstöðu aðila er sá að þeir aðilar sem höfðu hagsmuna að gæta af blóðmerahaldi lögðust gegn frumvarpinu en almennir borgarar og dýraverndunarsinnar studdu almennt markmið frumvarpsins. Þá bárust einnig á annað hundrað umsagnir til Matvælastofnunar vegna útgáfu starfsleyfis Ísteka, sem framleiðir PMSG úr merablóði, en þorri umsagnaraðila lagðist gegn endurnýjun starfsleyfisins og mótmælti blóðtöku úr fylfullum merum. Á Íslandi er stunduð blóðtaka úr fylfullum merum í því skyni að vinna úr blóðinu hormónið Pregnant Mare Serum Gonadotropin (PMSG), sem selt er til líftæknifyrirtækja svo að framleiða megi frjósemislyf, aðallega fyrir svínarækt.

Blóðmerar eru látnar ganga með folöld eins oft og mögulegt er til að hámarka afköst hverrar merar, þar til hormónið finnst ekki lengur í blóði hennar. Þegar svo er komið er merunum slátrað. Folöldunum er að jafnaði slátrað. Umfang blóðtökunnar fer fram úr ráðlögðu hámarki, langt fram úr ráðlögðu hámarki, en samkvæmt ritrýndri fræðigrein Vilanova o.fl. er lagt til að við endurteknar blóðtökur skuli ekki taka meira blóð en sem nemur 7,5% af heildarblóðrúmmáli. Gildandi reglugerð heimilar umtalsvert meiri blóðtöku, allt að 18,5% af heildarblóðrúmmáli vikulega, átta vikur í röð. Þannig að við erum að segja: Hér er heimilað að taka nánast fimmtunginn — fimmtunginn af blóði úr fylfullri meri einu sinni í viku, átta vikur í röð — fimmtung, takk fyrir.

Fylfullar merar sæta mismiklu og misgrófu ofbeldi við blóðtöku þegar verið er að ná úr þeim hormóninu PMSG. Það má glögglega sjá í heimildarmyndinni Ísland — land 5.000 blóðmera sem var frumsýnd 22. nóvember 2021 og vakti sterk viðbrögð og mikla reiði um heim allan. Í myndinni er fjallað um blóðmerahald á Íslandi þar sem greinilega kemur í ljós sú illa meðferð, misþyrming og dýraníð sem hryssurnar þurfa að sæta við blóðtökuna. Í myndinni eru færð rök fyrir því að ætla megi að slíkt harðræði tíðkist almennt við blóðtökuna hér á landi. Ég vil benda á að ég hef verið í sambandi við mjög marga bændur, hrossabændur sem aðra bændur, og þeim ber öllum saman um eitt — það skal tekið fram að það er verið að taka blóð úr fylfullum hryssum sem eru ótemjur — það bar öllum saman um það að þú tekur ekki ótemju og brosir fallega framan í hana og biður hana um að labba inn í bás þar sem á að taka úr henni blóð. Það þarf oftar en ekki að beita miklum átökum til að koma hryssunni á þann stað sem ætlað er að setja hana. Sumarið 2022 var tilkynnt um átta fylfullar merar sem drápust í tengslum við blóðtöku og grunur er um að þar hafi verið að störfum dýralæknar sem voru ekki nógu þjálfaðir. Þá vil ég benda á að ég hef heimildir fyrir því að þessar hryssur hafi verið mun fleiri. Í einu málinu sem kom inn á borð hjá Matvælastofnun, MAST, hafði verið gengið það harkalega fram í blóðtöku að barkinn var sundur tekinn í merinni, hún var dregin út úr básnum þar sem hún var látin liggja og drepast á næstu 10–15 mínútum og blæða út. Hún fékk ekki einu sinni að njóta vafans og fá kúlu í hausinn. Nei, hún var látin liggja þarna og deyja eins og hvert annað rusl.

Blóðmerahald jókst til muna undangenginn áratug en í kjölfar aukinnar umfjöllunar um blóðmerahald hefur umfang þess frekar dregist saman. Árið 2021 voru 119 starfsstöðvar með 5.383 blóðmerar, en árið 2022 hafði starfsstöðum fækkað í 90 og heildarfjöldi blóðmera var 4.779.

Ég ætla í því sambandi að nefna hér að hv. þm. Ásmundur Friðriksson kom hér upp í störf þingsins þar sem hann benti á nauðsyn þess að við styðjum við búskap bænda og í rauninni held ég að það sé varla til sá alþingismaður eða þá sá flokkur hér á þingi sem ekki vill styðja við búskap bænda. Hv. þingmaður bendir hér á fundinn Laun fyrir lífi þar sem bændur eru í rauninni að hrópa á aðstoð. Hann talar þar um blóðmerahald, hversu mikilvægt það sé fyrir þessa bændur og hann talar um að það séu nú um 2.000 hryssur sem verið sé að dæla blóði úr. Ef má deila eins mikið í það sem hv. þingmaður sagði þá vil ég leiðrétta hann hér með og benda á það að þær voru 4.779, hryssurnar, en ekki 2.000, svo það sé sagt.

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, sendi bréf til íslenskra stjórnvalda 10. maí 2023 þar sem færð voru rök fyrir því að blóðmerahald bryti í bága við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/63/ESB frá 22. september 2010 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Samkvæmt ESA heyrir starfsemin undir tilskipunina, þar sem hún telst sem notkun dýra í öðrum vísindalegum tilgangi og kann að valda dýrum sársauka, þjáningu eða varanlegum skaða umfram þann þröskuld sem tilskipunin kveður á um. ESA telur jafnframt að hvorki lög um velferð dýra né sú reglugerð sem ráðherra setti um blóðtöku úr fylfullum hryssum, nr. 900/2022, uppfylli þær kröfur sem tilskipunin gerir og miði að því að vernda dýr sem nota á í vísindaskyni. Það er skilyrði samkvæmt tilskipuninni að stjórnvöld meti hvort notkun dýra á þennan hátt sé nauðsynleg til að ná fram þeim markmiðum sem að er stefnt eða hvort hægt sé að ná fram sömu markmiðum án notkunar dýra. Íslensk stjórnvöld hafa ekki framkvæmt slíkt mat. Í kvörtuninni sem barst til ESA vegna blóðmerahalds á Íslandi kom fram að nú þegar væru framleiddar staðkvæmdarvörur sem hefðu sömu notkunareiginleika og þau lyf sem framleidd eru úr hormóni fylfullra mera. Þess skal getið að ég veit eiginlega ekki hvað mörg lyf er þegar búið að framleiða, hversu margar tegundir. Ég vissi alla vega um níu tegundir sem fást nú bara í apótekum í Þýskalandi, en svo komu fram heimildir um að þessar staðkvæmdarvörur væru í rauninni mun fleiri — mun fleiri.

Evrópuþingið hefur skorað á bæði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og aðildarríki þess að hætta innflutningi og framleiðslu á PMSG. Áskorun þingsins til aðildarríkja ESB er í raun einnig beint til Íslands sem aðildarríkis að EES-samningnum. Ef framkvæmdastjórnin grípur til aðgerða til að framfylgja ályktun Evrópuþingsins, sem felur í sér bann við blóðmerahaldi í Evrópu, liggur ljóst fyrir að slíkt bann mun ná til Íslands á grundvelli EES-samningsins. Ísland er líklega eini framleiðandi PMSG í Evrópu — við vitum einungis um þrjú lönd í heiminum sem ganga svona harkalega fram gegn fylfullum hryssum — þrátt fyrir að hrossabúskapur sé stundaður í öllum löndum álfunnar. Það vekur furðu að starfsemi sem þessi sé jafn umfangsmikil hér á landi og raun ber vitni.

Íslandsstofa hefur á undanförnum átta árum verið í sérstöku markaðsátaki til að kynna íslenska hestinn á erlendri grundu. Átakið felst í því að íslenski hesturinn verði þekktur á heimsvísu sem reiðhesturinn með góða geðslagið, sá sem færir fólk nær náttúrunni. Markmiðið með átakinu er að auka verðmætasköpun sem byggist á íslenska hestinum, sem er þvert á það dýraníð sem er verið að framkvæma hér á íslenskum fylfullum hryssum. Það er verið að styrkja ímynd hans í vitund fólks um heim allan og verið að markaðssetja vörumerkið Horses of Iceland.

Ísland ver á ári hverju miklum fjármunum í að draga fram jákvæða ímynd landsins á erlendri grund. Blóðmerahald stórskaðar þessa ímynd og hefur verið fordæmt um heim allan. Ef ekki verður gripið til aðgerða gegn blóðmerahaldi tafarlaust verður orðspor og ímynd Íslands fyrir óafturkræfu tjóni. Lög um velferð dýra hafa það að markmiði að stuðla að velferð dýra, raunverulega. Til þess eru lög um velferð dýra. Í þeim lögum er talið upp að dýrin séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma. Hvað af þessari talningu sem ég var með hér skyldi nú eiga við um villtar fylfullar hryssur sem er verið að troða inn í blóðmerabásinn? Eru þær hræddar? Skyldu þær vera óttaslegnar, með vanlíðan? Eru þær þjáðar? Eru þær með sársauka? Meiða þær sig? Fimm atriði af þessari upptalningu eiga beint við um dýraníðið blóðmerahald — beint við. Það er þverbrot á lögum um velferð dýra. Það liggur á borðinu og það þarf í rauninni að hafa lítið fleiri orð um það.

Það er enn fremur markmið laganna að dýr geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt. Það má vera ljóst að blóðmerahald brýtur gegn framangreindum markmiðum laganna. Stjórnvöld hafa ekki tryggt vernd fylfullra mera gegn því ofbeldi og þeirri illu meðferð sem felst í blóðmerahaldi. Löggjafinn verður að grípa til aðgerða strax og banna með öllu blóðmerahald. Lagt er til að brot gegn því banni varði refsingu skv. 1. mgr. 45. gr. laga um velferð dýra. Þá er einnig lagt til að 6. mgr. 45. gr., sem kveður á um að brot gegn velferð dýra skuli aðeins sæta rannsókn lögreglu að undangenginni kæru Matvælastofnunar, verði felld brott, því að að sjálfsögðu á þorri almennings og við, raunverulegir dýravinir, þeir sem raunverulega hugsa um velferð dýra, að geta bent á það ef um illa meðferð dýra er að ræða.

Það skal einnig tekið fram að við komum með breytingartillögu við frumvarp til fjáraukalaga til að tryggja það að ríkið myndi stíga inn og styrkja þá bændur sem yrðu fyrir búsifjum ef þetta frumvarp næði fram að ganga. Við höfum ítrekað bent á ýmsar leiðir til að aðstoða bændur við að komast í aðra tegund búskapar. Við höfum viljað niðurgreiða raforku, við höfum viljað efla garðyrkju. Við höfum viljað hjálpa þeim þannig að þau verði sjálfbær í allri ræktun á ávöxtum og grænmeti og allri ylrækt. Þetta hefur náttúrlega ekki fengið góðan hljómgrunn.

Það er vert að geta þess að það kom tilkynning frá matvælaráðuneyti 15. september síðastliðinn í kjölfar samskipta milli Eftirlitsstofnunar EFTA og matvælaráðuneytisins:

„Í kjölfar samskipta milli Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og matvælaráðuneytisins mun reglugerð sem gilt hefur síðan 2022 um blóðmerahald verða felld úr gildi og starfsemin felld undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni sem innleiðir tilskipun 2010/63/EB sem felld var inn í EES-samninginn árið 2014.

Í formlegu áminningarbréfi“ — áminningarbréfi, tek ég fram aftur, frú forseti — „ESA frá 10. maí sl. kemur fram afstaða stofnunarinnar um að Ísland hafi brotið gegn ákvæðum framangreindrar tilskipunar og ákvæðum EES-samningsins með setningu sérreglna um málefnið. Málið snýr að túlkun á gildissviði regluverksins sem um ræðir og hafa íslensk stjórnvöld“ — takið eftir — „fallist á að blóðtaka úr fylfullum merum fyrir framleiðslu á PMSG/eCG hormóni falli innan gildissviðs regluverksins. Reglugerð um blóðtöku úr fylfullum hryssum nr. 900/2022 verður felld úr gildi frá 1. nóvember nk. Lögð er áhersla á að gæta meðalhófs og að hagaðilum sé gefið tækifæri til að aðlaga sig að nýrri lagaumgjörð.“

— Það skal tekið fram að nú er þessari blóðmeravertíð ársins 2023 að ljúka, er nýlokið, en hún mun hefjast aftur næsta sumar þannig að aðlögunin er alveg nóg í mínum huga. — „Eftir 1. nóvember mun reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni gilda um starfsemina. Að fella starfsemi blóðmerahalds undir umrædda reglugerð felur í sér að formkröfur til ákveðinna þátta starfseminnar munu breytast, t.d. varðandi starfsleyfi sem Matvælastofnun annast samkvæmt reglugerðinni.“

Það hefur einnig komið fram að það er talið að með þessari reglugerð sem við erum að innleiða nú sé nánast sjálfhætt, enda liggur það líka á borðinu. Það er ekkert við blóðtöku úr fylfullum hryssum, ekki neitt, sem kalla má í vísindaskyni. Það eru akkúrat engin vísindi, eftir áratuga dýraníð á fylfullum hryssum eru akkúrat engin vísindi sem liggja þar að baki. Og markmiðið, sem áður segir, sem að var stefnt með því að vinna hormónið PMSG úr blóði fylfullra hryssna, er eingöngu og einungis að auka svínakjötsframleiðslu fyrst og síðast. Í sárafáum tilvikum er þetta hormón notað í eitthvað annað. Þannig að þegar upp er staðið snýst þetta dýraníð um það að við getum borðað meira beikon og að verksmiðjubúskapurinn geti blómstrað sem aldrei fyrr með einu dýraníðinu ofan á annað. Þannig að ég vona bara innilega eftir allt sem á undan er gengið að löggjafinn fari að gyrða sig í brók og banna það sem hefur verið okkur til háborinnar skammar. Ég veit ekki eins og hvað við lítum út fyrir að vera á erlendri grund. Við eigum að koma til móts við bændurna okkar, byggja upp sjálfstraust þeirra gagnvart því að vera með búskap sem ekki er þannig úr garði gerður að það orki tvímælis og jafnvel særi siðferðis- og blygðunarkennd fólks.

Það er sárara en tárum taki að árið 2023 skuli ég standa hér og mæla fyrir banni við blóðmerahaldi í fjórða sinn. Það er sárara en tárum taki að maður skuli vera að berja hér hausnum við steininn þegar í rauninni allur heimurinn sendir okkur illt auga. Þegar ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, hefur sent okkur skammir, eigum við bara að hunsa það, frú forseti? Það er kominn tími til að taka utan um þessar blóðmerar.

Að lokum langar mig að vísa aftur í hv. þm. Ásmund Friðriksson því að hann hefur mikinn áhuga, held ég, á blóðmerahaldi og nefndi það hér sérstaklega í störfum þingsins, sagði að þessar hryssur hefðu það sennilega best allra dýra í landinu, þær væru frjálsar og þyrftu ekki að ganga í gegnum neinar þvinganir eða leiðindi nema í örfáa klukkutíma á ári. Staðreyndin er sú að bara í desember 2019 drápust 100 merar, 100 merar drápust í óveðrinu og á hverju einasta ári drepast mismargar hryssur hér í ofsaveðrum sem geisa um landið vegna þess að það er ekki um þær hirt. Þær hafa ekkert skjól. Þannig að hún er í rauninni brotin, þessi dýravelferð, og þessi löggjöf um dýravelferð virðist meira vera sýndarmennska heldur en raunveruleg lög.

Það er kominn tími til, frú forseti, að eftirlitsaðilar og löggjafinn sjálfur fylgi því fast eftir sem hann hefur gert hér að lögum. Það er ætlast til þess að almenningur fylgi þeim reglum sem við setjum hér. Hér eru menn kærðir hægri vinstri fyrir að keyra of hratt eða á öfugum helmingi vegarins eða hvaðeina annað sem er. Hér má í rauninni ekki neitt öðruvísi en að við því séu einhver ákveðin viðurlög. En dýraníð, það má brjóta lög um velferð dýra um hábjartan dag fyrir framan alheim án þess að íslensk stjórnvöld og eftirlitsaðilar bregðist við.

Frú forseti. Það er kominn tími til að leggja algjört bann við dýraníðinu blóðmerahaldi.