154. löggjafarþing — 20. fundur,  25. okt. 2023.

velferð dýra.

12. mál
[17:02]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég er meðflutningsmaður á þessu frumvarpi um breytingu á lögum um velferð dýra líkt og allur þingflokkur Flokks fólksins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson frá Pírötum — mikilvægt að minnast hans — þar sem lagt er til að bannað verði að taka blóð úr fylfullum merum í þeim tilgangi að selja það eða vinna úr því hormónið PMSG (Pregnant Mare Serum Gonadotropin) eða nokkra aðra vöru til sölu.

Hér er um mikilvægt dýravelferðarmál að ræða. Þessi starfsemi hefur verið stunduð hér undanfarinn áratug eða meira og er hormónið aðallega notað til að framleiða frjósemislyf fyrir svínarækt. Blóðmerarnar eru látnar ganga með folöld eins oft og mögulegt er til að hámarka afköst hverrar merar þar til hormónið finnst ekki lengur í blóði hennar. Þegar svo er komið er merunum slátrað. Folöldunum er að jafnaði slátrað og þetta eru oft mjög lítil folöld. Umfang blóðtökunnar fer fram úr því lágmarki sem t.d. er minnst á í greinargerð, en í ritrýndri fræðigrein er lagt til að það eigi aldrei að taka meira en 7,5% af heildarblóðrúmmáli. Gildandi reglugerð heimilar umtalsvert meiri blóðtöku, eða allt að 18,5% af heildarblóðrúmmáli vikulega, átta vikur í röð.

Augljóst er að hér er um dýraníð að ræða sem varðar lög um velferð dýra. Hvernig má það vera að verið sé að taka vaxtarhormón úr fylfullri meri einmitt á þeim tíma sem hún þarfnast þess mest þegar hún er fylfull? Merin bregst oft þannig við að hún fyllist angist, missir stjórn og verður dauðhrædd. Hið ófædda folald vex heldur ekki eins og það myndi gera án þessarar blóðtöku. Hvað er svo gert við þetta vaxtarhormón? Jú, því er sprautað í svín. Það má eiginlega segja að hér sé um dýraníð að ræða á þremur stigum; gagnvart fylfullri meri, ófæddu folaldi og svíninu. Í fyrra, sumarið 2022, var tilkynnt um að átta fylfullar merar hefðu drepist í tengslum við blóðtöku og grunur leikur á að það hafi verið vegna starfa dýralækna sem ekki voru nógu þjálfaðir.

Blóðmerahald jókst til muna undangenginn áratug en í kjölfar aukinnar umfjöllunar um blóðmerahald hefur umfang þess farið minnkandi. Árið 2021 voru 119 starfsstöðvar með 5.383 blóðmerar en í fyrra, árið 2022, voru starfsstöðvar orðnar 90 talsins og heildarfjöldi blóðmera 4.779.

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, sendi íslenskum stjórnvöldum bréf í maí í ár þar sem færð eru rök fyrir því að blóðmerahald brjóti í bága við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins frá september 2010 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni. Samkvæmt ESA heyrir starfsemin undir tilskipunina, þar sem hún telst sem notkun dýra í öðrum vísindalegum tilgangi og kann að valda dýrum sársauka, þjáningu eða varanlegum skaða umfram þann þröskuld sem tilskipunin kveður á um. ESA telur jafnframt að hvorki lög um velferð dýra né sú reglugerð sem ráðherra setti um blóðtöku úr fylfullum hryssum frá 2022 uppfylli þær kröfur sem tilskipunin gerir og miði að því að vernda dýr sem nota á í vísindaskyni. Það er skilyrði samkvæmt tilskipuninni að stjórnvöld meti hvort notkun dýra á þennan hátt sé nauðsynleg til að ná fram þeim markmiðum sem að er stefnt eða hvort hægt sé að ná fram sömu markmiðum án notkunar dýra. Stjórnvöld hafa ekki lagt mat á það hvort það sé hægt að ná markmiðum með öðrum hætti en með blóðtöku úr fylfullum merum. Er vert að benda á að í kvörtuninni sem barst til ESA vegna blóðmerahalds á Íslandi kom fram að nú þegar væru framleiddar staðkvæmdarvörur sem hefðu sömu notkunareiginleika og þau lyf sem framleidd eru úr hormóni fylfullra mera. Það er hægt að nota önnur staðkvæmdarlyf en þetta hormón sem tekið er úr fylfullum merum.

Evrópuþingið hefur skorað á bæði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og aðildarríki þess að hætta innflutningi og framleiðslu á PMSG, þessu vaxtarhormóni. Ég veit að þetta hefur verið til umræðu í danska þinginu, hollenska þinginu og í Sviss. Ég veit að Danir eru að skoða þetta mál hjá sér en það breytir því ekki að við erum eini framleiðandinn á PMSG í Evrópu. Þrátt fyrir að hrossabúskapur sé stundaður í öllum löndum álfunnar eru það bara við á Íslandi sem framleiðum þetta. Hver eru hin ríkin? Jú, það eru fátæk þriðja heims ríki; fátæk ríki í Suður-Ameríku, Úrúgvæ og Argentína og svo Mongólía og Kína. Við erum á sama bás í dýravelferð hvað þetta varðar.

Ég vil líka minnast á ímynd Íslands. Nú hefur Íslandsstofa verið í sérstöku markaðsátaki til að kynna íslenska hestinn á erlendri grund undir nafninu Horses of Iceland. Við verjum miklum fjármunum í að byggja upp þessa ímynd og höfum náð gríðarlegum árangri. Staða íslenska hestsins úti í heimi er alveg einstök, hvort sem er í Skandinavíu, Bandaríkjunum, Þýskalandi eða annars staðar — það er haldin heimsmeistarakeppni íslenska hestsins — svo ég tali nú ekki um þá ímynd og þann stall sem íslenski hesturinn er á í íslensku samfélagi og hefur verið á í árhundruð sem þarfasti þjónninn. Síðan erum við farin að nota þessa merkilegu skepnu til blóðmerahalds til að vinna vaxtarhormón úr skepnunum, sem er klárt dýraníð eins og hér hefur komið fram. Þetta skaðar stórlega þá ímynd sem bæði við sem samfélag höfum af íslenska hestinum og úti í heimi.

Eins og kom fram hjá framsögumanni er ljóst að þessi iðnaður, ef við getum kallað hann svo, er undir reglugerð um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Tilgangur reglugerðarinnar er að stuðla að takmörkun á notkun dýra í vísinda- og menntunarskyni, stuðla að velferð og virðingu fyrir dýr sem notuð eru í slíkum tilgangi, og að tryggja að dýr sem notuð eru í slíkum tilgangi séu ekki látin sæta óþarfa álagi. Þetta er tilgangurinn sem maður les úr 1. gr. reglugerðarinnar og það er alveg augljóst mál að blóðmerahald gengur gegn tilgangi þessarar reglugerðar um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni. Það má nánast fullyrða að um leið og búið er að færa blóðmerahald undir þessa reglugerð sé blóðmerahaldi sjálfhætt, nema við ætlum að fara í einhverja stórkostlega lögfræðilega fimleika til að fella blóðmerahald í atvinnuskyni hér undir, með þeim hætti og því magni sem það er stundað hér á Íslandi. Blóðmerar voru tæplega 5.000 á síðasta ári og tekin voru vikulega, átta vikur í röð 18,5% af heildarblóðrúmmáli. Það mun ekki standast reglugerðina á nokkurn einasta hátt nema við ætlum að túlka hana þannig að hún verði algjörlega marklaus.

Ef við skoðum þessa reglugerð er t.d. fjallað um það í 8. gr. að notast skuli við vísindalega aðferð eða prófunaráætlun sem ekki felur í sér notkun á lifandi dýrum. Einnig skal við tilraunir ekki nota fleiri dýr en nauðsynlegt er, án þess að markmiði tilraunar sé stefnt í hættu. Það er augljóst mál að ef við ætlum að gera vísindatilraunir og framleiða hormón til sölu í því magni sem við gerðum í fyrra úr tæplega 5.000 skepnum, þá brjótum við strax við bága við ákvæði 8. gr. um það að við tilraunir skuli ekki notast við fleiri dýr en nauðsynlegt er. Það er alveg klárt mál að við þurfum ekki að notast við tæplega 5.000 skepnur til að gera þá vísindatilraun, eða 4.779 blóðmerar.

Einnig kemur fram í reglugerðinni um val á aðferðum að tilraun skuli ekki gerð ef önnur aðferð eða prófunaráætlun, til að ná fram þeim niðurstöðum sem sóst er eftir, sem felur ekki í sér notkun á lifandi dýri, er viðurkennd. Það eru þessar staðkvæmdarvörur; önnur aðferð er til. Við val um aðferðir við tilraunir og prófunaráætlanir skal velja þær sem fela í sér notkun á sem fæstum dýrum, það er a-liðurinn; notkun dýra sem upplifa sem minnstan sársauka, þjáningu, hræðslu eða verða fyrir sem minnstum varanlegum skaða, og er augljóst mál að það á ekki við um fylfullar blóðmerar; aðferðir sem valda dýrunum — þetta er endurtekið í 10. gr. — sem minnstum sársauka, þjáningu, hræðslu eða varanlegum skaða.

Það er alveg klárt mál að blóðmerahald stenst engan veginn þessa reglugerð eins og við höfum stundað það, það er ekki í vísindaskyni og stenst ekki dýravernd. Við skulum vona að framkvæmd þessarar reglugerðar verði með þeim hætti að hún verði samkvæmt orðanna hljóðan. Þá væri þessu sjálfhætt. Flokkur fólksins hefur lagt til að nái þetta frumvarp fram að ganga verði blóðmerabændum bættur sá skaði og við höfum lagt fram tillögur í fjáraukalögum hvað það varðar.

Það er mjög mikilvægt að við séum á undan bylgjunni, ef svo má segja, og tökum ekki á þessu eftir á. Að stunda blóðmerahald á grundvelli reglugerðar sem síðan stenst hana ekki á nokkurn hátt fyrir lögum mun líklega kalla á dómsmál. Það má ljóst vera að blóðmerahald brýtur gegn markmiðum og tilgangi þessarar reglugerðar og brýtur líka gegn lögum um velferð dýra. Stjórnvöld hafa ekki tryggt vernd fylfullra mera gegn því ofbeldi og þeirri illu meðferð sem felst í blóðmerahaldi. Löggjafinn verður því að grípa til aðgerða strax og banna blóðmerahald með öllu. Út á það gengur þetta frumvarp. Ég vænti þess að það fái góða umfjöllun í atvinnuveganefnd og komi til 2. umræðu í þingsal.