velferð dýra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir áhugaverða ræðu. Hann sagði: Við getum öll haft skoðanir á blóðmerahaldi, og bendir jafnframt á að atvinnulífið eigi að vera traust og gott. Skoðanir Flokks fólksins eru þær að við teljum að það eigi að banna blóðmerahald vegna þess að þetta er slæm meðferð á fylfullum merum. Þetta er líka slæm meðferð á hinum ófæddu folöldum og slæm meðferð á svínum. Og að vera að tala um að það sé verið að saka einstaka bændur hér um dýraníð og vera með persónulegar árásir er bara einfaldlega rangt. Við erum að fjalla hér um atvinnugrein sem við teljum að eigi ekki að vera stunduð á Íslandi vegna þess að í henni felst slæm meðferð á dýrum, dýraníð, eins og ég fór yfir í ræðu minni.
Talandi um bændur í samfélaginu þá er nú bara vert að minna á það hverjir hafa verið við völd undanfarin ár og áratugi. Það eru Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn. Hver er staðan hjá bændum í dag? Á hverra vakt horfir fram á fjöldagjaldþrot í stéttinni, fátækt sauðfjárbænda, fátækt kúabænda o.s.frv.? Jú, það er á vakt Sjálfstæðisflokksins. Þetta er algerlega á ábyrgð ykkar. Og hvernig stendur á því að bændur eru svona illa staddir? Jú, það er af því að Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og núna VG hafa ekki verið að sinna þessari atvinnugrein og ekki stutt nægilega við bakið á bændum.
Annað sem er vert að benda á er að Evrópuþingið hefur skorað á framkvæmdastjórn ESB og aðildarríki þess að hætta innflutningi og framleiðslu á PMSG. Af hverju? Jú, af því að þau líta á það sem dýraníð, svo einfalt er það. Svo er verið að býsnast yfir því að við séum að tala um þetta mál hér með þessum hætti. Það er eina leiðin. Grundvöllur þess að við teljum að það eigi að banna þetta er að þetta er dýraníð. Hvernig hv. þingmaður telur það ekki vera dýraníð þegar það er verið að taka vaxtarhormón úr fylfullri meri — mér þætti bara mjög gott að fá að heyra hvernig það getur staðist. Ég tala nú ekki um hið ófædda folald, hvernig það á að geta vaxið inni í kviði hinnar fylfullu merar þegar það er búið að taka vaxtarhormónið frá hinu ófædda folaldi og svo er því dælt inn í svínin. Hvernig er hægt að líta á það öðruvísi en sem dýraníð?