velferð dýra.
Frú forseti. Ég kem hér upp fyrst og fremst til að þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða og mikilvæga ræðu, bændum til varnar. Við þekkjum það og ég held að þingmenn almennt geri sér grein fyrir því að bændur á Íslandi og örugglega víðast hvar leggja mikla áherslu á að fara vel með dýrin sín. Gangur náttúrunnar er sá að stundum er þessum dýrum slátrað, það er ástæðan fyrir því að þau eru alin, og þá vilja menn gera það eins vel og kostur er og með sem allra minnstri þjáningu, a.m.k. á Íslandi, og það að vera dýr á búi á Íslandi er miklu betra hlutskipti, held ég að mér sé óhætt að segja, heldur en að vera dýr úti í náttúrunni og þjást af öllum þeim ástæðum sem náttúran býður dýrum upp á. Ég tel mjög mikilvægt að hv. þingmaður hafi undirstrikað það hvernig bændur nálgast sín störf og mér finnst líka afar mikilvægt að við gerum greinarmun á dýrum og fólki. Þetta er algerlega sitthvor hluturinn. En ég ætla að spyrja hv. þingmann spurningar sem gæti hljómað eins og einhvers konar óviðeigandi grín. Það er alls ekki meiningin heldur vil ég reyna að setja hlutina í samhengi: Ef hv. þingmaður væri hross, hvort myndi hann frekar vilja gefa blóð eða vera slátrað?