velferð dýra.
Virðulegur forseti. Það eru svolítið miklir afarkostir að standa hér í púlti Alþingis og velja dauðdaga eða blóðgjöf. Ég held að blóðgjöf okkar mannanna til hvers annars sé náttúrlega mjög göfugt og þarft verkefni. Ég held að mikilvægast sé að við tökum höndum saman, bæði um blóðmerahald og búskaparhætti og að þeir séu allir þannig, sama hvar þeir eru, að dýrunum líði sem best. Við þekkjum þennan gang. Þetta er gangur lífsins, búinn að vera það frá ómunatíð, frá því að land byggðist og löngu áður. Fæðukeðjan er svona og við erum efst í henni og búum við það að sækja okkur mat og þess vegna er mjög mikilvægt að við allt það starf og alla þá vinnu sem við vinnum við, hvort sem það er til sjós eða lands, sé unnið af virðingu við dýrin og við sýnum þeim þá virðingu að ljúka þessu á þann hátt að sem minnstur skaði verði og sársaukinn verði sem minnstur. Ég vil nú bara segja það að þó að hv. þingmaður hafi talið spurninguna eitthvað út í bláinn þá er það auðvitað mjög mikilvægt að við setjum okkur í þessi spor. Meðferðin skiptir miklu máli og við eigum aldrei að láta hjá líða að gera athugasemdir við það þegar illa er farið með menn eða skepnur vegna þess að það á enginn að stunda þá iðju við hvorki menn né dýr.