154. löggjafarþing — 20. fundur,  25. okt. 2023.

velferð dýra.

12. mál
[17:44]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og tek undir það sem hann nefndi nú og raunar í ræðu sinni líka að það er mjög mikilvægt að dregin sé upp rétt og sönn mynd af því hvernig landbúnaður gengur fyrir sig og margir bændur, ekki hvað síst í mínu kjördæmi sem ég hef rætt við um þessi mál, eru sárir og reiðir yfir þeirri röngu mynd sem hefur verið oft og tíðum dregin upp, m.a. í fjölmiðlum, af störfum þeirra. Þeir lýsa þessu allt öðruvísi heldur en við höfum verið látin horfa upp á í fjölmiðlum og raunar að þetta gangi almennt, þegar rétt er að verki staðið, mjög friðsamlega fyrir sig og hrossin ánægð eftir framkvæmdina og fái sína köku o.s.frv. En ég spyr hv. þingmann í ljósi áforma hæstv. matvælaráðherra um breytta skilgreiningu á þessari starfsemi: (Forseti hringir.) Hefur hv. þingmaður áhyggjur af því sem er í vændum fyrir greinina?