grunnskólar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og gott að fá þetta fram vegna þess að þetta er einmitt það sem ég komst að þegar ég var að vinna þetta frumvarp. Ég vil taka það fram að ég var í góðu samstarfi við þá sem þekkja vel til þessara mála. Ég ræddi við kennara, ég ræddi við prófessora við Kennaraháskóla Íslands, þannig að ég var með fólk með mér í þessari vinnu sem þekkir mjög vel hvernig þessum málum er háttað. Þeim bar öllum saman um að það er ekki nein staðfesta í kennslunni, þ.e. kennarar hafa í raun og veru frjálsan vilja með það hvað þeir kenna þegar kemur að trúarbragðafræðinni. Ef kennari hefur sérstakan áhuga á t.d. búddisma eða einhverju svoleiðis, þá getur hann kennt meira um þau trúarbrögð en önnur trúarbrögð, þ.e. það vantar þessa skýru leiðbeiningar um það hvernig kennslunni skuli háttað. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður nefndi að það er að sjálfsögðu minnst á kristni í aðalnámskrá og í kennslunni en hún er ekki kennd sem sérstakt fag lengur og út á það gengur hluti þessa frumvarps. Ég legg m.a. til að það verði fastákveðið með hvaða hætti kennslunni skuli háttað, þ.e. það skuli kennt 50% um kristni og 50% um önnur trúarbrögð vegna þess að framkvæmdin hefur verið önnur og það tel ég óheppilegt. Þess vegna er lögð áhersla á að það verði skýrt með hvaða hætti kennslunni verði háttað og aukið vægi kristinfræðikennslu. Það er það sem frumvarpið gengur út á og skýrt með hvaða hætti kennslunni skuli háttað.