grunnskólar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta ágæta innlegg í þessa umræðu og ég minni bara á, eins og ég minntist á hér í minni ræðu, að þegar þessi breyting er gerð þá er trúarbragðafræðsla felld undir samfélagsgreinarnar og þá er tíminn orðinn naumt skammtaður. Það voru allir kennarar sammála því sem ég ræddi við að það þyrfti að auka þennan tíma og að þetta kæmi bara niður á þessum greinum og niður á kennslunni. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt að þekkja eigin trúarbrögð og sérstaklega þegar kemur að fjölmenningu, það sé mikilvægt til þess að auka skilning á trúarbrögðum annarra. Ég held ég hafi fært ágætisrök fyrir því hér í minni ræðu.
Kjarni málsins er þessi að það hefur dregið úr kennslu í kristinfræði í skólum landsins og ég tel það vera óheppilegt. Ég tel það mjög gott innlegg fyrir börn í dag að þekkja biblíusögurnar eins og ég nefndi. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður nefndi að það er minnst á þær í aðalnámskrá en eins og ég sagði áðan þá er ekki verið að fylgja þessu nægilega vel eftir. Þess vegna er afar mikilvægt að þetta sé fastmótað og m.a. að kristinfræði verði kennd helminginn af þessum tíma sem ætlað er í þetta, eins og ég nefndi áðan. Í mínum huga er þetta frumvarp mjög skýrt. Og eins og ég sagði þá ræddi ég þetta við kennara og ég hef fengið mikla hvatningu, m.a. frá kennurum sem telja að við þurfum að bæta okkur í þessum efnum og eru að sjálfsögðu fylgjandi því að kristinfræði sé kennd í skólum.