grunnskólar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni og tek alveg undir það með honum að það er sjálfsagt að fræða um skyldleika trúarbragðanna. Það er bara mjög mikilvægt, sérstaklega þegar kemur að umburðarlyndinu. Við erum náttúrlega að horfa upp á mörg stríðin og annað slíkt sem tengist trú, því miður.
En af því að hv. þingmaður minntist hér aðeins á trúboð þá held ég að ég hafi farið mjög vel yfir það í minni framsöguræðu að hér er ekki um trúboð að ræða. Ég vitnaði m.a. í dr. Sigurð Pálsson og fleiri sem hafa gefið mjög greinargóðar útskýringar á því hversu mikilvæg fræðslan er en að hún sé ekki og eigi ekki að vera trúboð. Ég held að það sé alveg skýrt í þessu frumvarpi og að það þurfi enginn að efast um það.
Af því að hv. þingmaður minntist aðeins á samfélagsmiðlana þá finnst mér bara ágætt að koma því á framfæri — hver er staða grunnskólanna í dag? Við sjáum það að einelti er að aukast í grunnskólunum og einelti eykst mjög í kringum 2012 sem er um svipað leyti og samfélagsmiðill sem heitir á ensku Snapchat kemur fram á sjónarsviðið þar sem er hægt að senda myndir og annað slíkt. Við sjáum það á öllum tölum að einelti hefur aukist í grunnskólum og töluvert á síðustu árum og það kemur fram í könnunum sem hafa verið gerðar. Í dag er það þannig að fjórði hver nemandi í 6. bekk hefur tilkynnt um einelti. Þetta eru svakalega háar tölur. Sömuleiðis hefur sjálfsálit unglinga dalað og ofbeldi nemenda gagnvart kennurum í grunnskólum aukist. Það er áhyggjuefni hvert við stefnum og tel ég að þetta frumvarp sé liður í því að vinna gegn þessari þróun og einmitt að nemendur (Forseti hringir.) fái þessa þjálfun í siðferði sem þau geta svo stuðst við með biblíusögunum sem eru mjög heppilegar, einfaldar (Forseti hringir.) og hafa þessa djúpu siðferðilegu merkingu. — Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar.