154. löggjafarþing — 21. fundur,  26. okt. 2023.

áherslur og störf ríkisstjórnarinnar.

[10:39]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Já, það var áhugavert viðtalið í Dagmálum undir fyrirsögninni „Endurnýjað erindi ríkisstjórnar“ við oddvita ríkisstjórnarinnar. Mér fannst þetta viðtal fyrir margra hluta sakir áhugavert, pínu neyðarlegt á hvaða stað þessi ríkisstjórn er, og ágætir þáttastjórnendur spurðu þríeykið ítrekað hvert erindi ríkisstjórnarinnar væri en þau fóru aðallega að rekja í löngu máli sagnfræðilegan grunn ríkisstjórnarinnar, í algjörum varnartón í stað þess að segja þjóðinni hvert hið raunverulega erindi ríkisstjórnarinnar er, svona dálítið eins og þau væru mætt í munnlegt próf í sagnfræði.

Í viðtalinu skautar forystufólk stjórnarflokkanna listilega fram hjá stóru spurningu viðtalsins sem var hvernig stjórnin ætlar að leysa ágreiningsmál sem sannarlega eru til staðar. Þau voru spurð hvað hafi þá verið tæklað á vinnufundunum og það stóð ekki á þessu margfræga svari: Við fórum í það að endurnýja erindi ríkisstjórnarinnar, endurnýja erindi Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Takk fyrir það. Það var ekkert snert á ágreiningsmálunum sjálfum, ekki því sem brennur á heimilum landsins og fyrirtækjum, bara um þau sjálf og niðurstaðan: Jú, þau komust þó að því, og við skulum líka þakka fyrir það, klufu svolítið atómið þar, að þau voru sammála því að verðbólgan væri vandamál. Það var niðurstaða fundarins. Það var ekkert talað um verðbólguna, vextina, hvernig á að leysa fjárlagahallann. Það var ekki talað um orkumálin, sjávarútvegsmálin, hvalinn, kvótann, fiskeldið, við þekkjum þetta, útlendingamálin algjörlega látin vera, landbúnaðarmálin — engin skilaboð til bænda sem þurfa nauðsynlega á skilaboðum að halda. Verður áframhald á bankasölu? Veit það ekki. Ekki sömu skilaboð frá ríkisstjórninni. Samgöngusáttmálinn — maður spyr núna: Má enn þá segja borgarlína við ríkisstjórnarborðið? Má það enn þá?

Þau héldu fund. Þau héldu þetta fína hópefli. Þau pússuðu hringana, þessi ágæta ríkisstjórn, en það virðist hafa verið spólað yfir öll erfiðu samtölin. (Forseti hringir.) Mér finnst ríkisstjórnin skulda þjóðinni það að tala skýrt því að þjóðin getur ekki meira af þessari kyrrstöðu.