154. löggjafarþing — 21. fundur,  26. okt. 2023.

áherslur og störf ríkisstjórnarinnar.

[10:42]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Ég varð ekki vör við neina fyrirspurn beinlínis í þessari ágætu endursögn hv. þingmanns á viðtali í Dagmálum. Ég hrósa bara hv. þingmanni fyrir að hafa horft á þá klukkustund af gæðaefni. En ég vil segja það hér að mér finnst samt eins og hv. þingmaður hafi nú í fyrsta lagi misst af einhverjum punktum úr þessu ágæta viðtali því að þar var til að mynda sannarlega rætt um fiskeldi og góðar tillögur sem hæstv. matvælaráðherra hefur kynnt í þeim efnum, tillögur sem almennt er fagnað og tekið vel hringinn í kringum landið enda löngu tímabært að taka á þessu máli.

Dýrtíðin var líka svo sannarlega til umræðu og þar erum við með þá stöðu að verðbólgan hefur vissulega verið þrálátari en við hefðum óskað og ég held að það eigi við um okkur öll. En það breytir því ekki að það eru vísbendingar núna um að aðgerðir okkar í ríkisfjármálum og aðgerðir Seðlabankans séu farnar að bera árangur, að undirliggjandi verðbólga hafi, þrátt fyrir nýjustu mælingu, hjaðnað. Það gefur okkur von um að þessar aðgerðir séu að skila árangri. Samkvæmt nýjustu spá Seðlabankans eru verðbólguhorfur betri nú en þær voru í vor og bankinn gerir ráð fyrir að það dragi meira úr verðbólgu á næstu mánuðum en gert var ráð fyrir í vor. Það er einfalt, og líklega gæti ég alveg gert hið sama væri ég í stjórnarandstöðu, að benda eingöngu á ríkisstjórnina þegar rætt er um verðbólgu. En auðvitað vitum við öll hér í þessum sal að það skiptir vissulega máli hvað gert er í ríkisfjármálum. Það skiptir máli hvað Seðlabankinn gerir en það skiptir líka máli hvað gerist á vinnumarkaði. Það sem ég vil segja um þau mál, af því að við áttum mjög ágætan fund í þjóðhagsráði fyrr í þessari viku þar sem rætt var um stöðuna fram undan, mikilvægi þess að við gerum að langtímakjarasamninga, að við náum saman um aðgerðir til að greiða fyrir slíkum langtímasamningum. Þar er mjög skýr áhersla annars vegar á húsnæðismarkaðinn en hins vegar líka á kjör barnafjölskyldna og þar þurfa bæði ríki og sveitarfélög að koma að, því að því að miður erum við í þeirri stöðu að umönnunarbilið er allt of breytt enn þá. Það er stórmál, bæði fyrir lífskjör fólksins í landinu og jafnréttismálin, sem hafa auðvitað verið til umræðu í þessari viku.