154. löggjafarþing — 21. fundur,  26. okt. 2023.

staða landbúnaðarins og innlendrar matvælaframleiðslu.

[10:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Fyrst varðandi þá umræðu sem hér hefur átt sér stað varðandi þetta viðtal í Dagmálum Morgunblaðsins í gær þá hvet ég þingmenn til að fara inn á nýjan þátt af sjónvarpslausum fimmtudögum [Hlátur í þingsal.] þar sem djúp greining á viðtalinu var sett fram. (Forsrh.: Það er bara einhver fjölmiðlavinna hérna í gangi.)

En að þessu sögðu vil ég beina hér fyrirspurn til hæstv. matvælaráðherra. Samtök ungra bænda eru í dag með baráttufund í Salnum þar sem reynt er að draga fram þá stöðu sem blasir við þeim sem nýkomnir eru inn í stéttina og langar að leggja það fyrir sig að stunda matvælaframleiðslu hér á Íslandi. Við getum ekki lýst því öðruvísi en sem neyðarópi, þeim tóni sem borist hefur frá fulltrúum Bændasamtakanna undanfarið. Ég hef stundum lýst því þannig að staða okkar gagnvart bændum, og þá meina ég aðkomu hins opinbera, ríkissjóðs, sé svolítið eins og er varðar samgöngumál á Vestfjörðum. Þar erum við og höfum verið í mikilli samgönguskuld vegna þess að svæðið var látið dragast aftur úr yfir langt tímabil. Það var nú sem betur fer gleðidagur í gær þegar brú yfir Þorskafjörð var tekin í notkun. En við erum svolítið í sömu stöðu gagnvart bændum í landinu. Það heyrist glögglega á þeim skilaboðum sem þaðan berast og undirstrikast sérstaklega með þessum fundi Samtaka ungra bænda í dag undir yfirskriftinni Laun fyrir lífi. Mig langar í þessu samhengi að spyrja hæstv. matvælaráðherra með opnum hætti: Hvert er planið, ef það er eitthvert plan?