staða landbúnaðarins og innlendrar matvælaframleiðslu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að bændur hafa áhyggjur af sinni afkomu og ekki síst ungir bændur sem hyggjast halda fund sérstaklega um þau mál í dag þar sem ég mun taka þátt í umræðum rétt eins og fleiri þingmenn, ef ég kann það rétt. Hv. þingmaður spyr sérstaklega um planið. Vegna þessarar alvarlegu fjárhagsstöðu greinarinnar þá var 20. október tilkynnt um stofnun sérstaks starfshóps þriggja ráðuneytisstjóra matvæla-, fjármála- og innviðaráðuneytis, sem mun leggja mat á þá stöðu sem er komin upp í landbúnaði í kjölfar endurtekinna hækkana á stýrivöxtum og verðhækkana á aðföngum. Þessi ráðuneyti hafa þegar hafið upplýsingasöfnun og greiningarvinnu og hópurinn fundaði strax á mánudag í þessari viku. Hópurinn tekur til skoðunar gögn sem liggja bæði hjá ráðuneytinu, Byggðastofnun, RML, Creditinfo, Seðlabankanum, Hagstofunni og auðvitað hjá Bændasamtökunum sjálfum til að draga upp mynd af stöðunni í greininni. En þarna erum við að tala um þær áskoranir sem eru í landbúnaði, rétt eins og í öðrum geirum samfélagsins vegna dýrtíðarinnar. Hátt vaxtastig hefur auðvitað mjög mikil áhrif á þennan hóp og ekki síst þann hóp sem hefur ráðist í fjárfestingar nú á síðustu árum.
En mér finnst afar mikilvægt, og vil kalla hv. þingmann til þeirrar umræðu ekki síður, að við höldum því til haga að það eru gríðarleg sóknarfæri í íslenskum landbúnaði. Það eru allar grundvallarforsendur til staðar á Íslandi til þess að landbúnaður sé hér kröftugur. Hér er bæði vatn, landrými og mikill mannauður og við eigum að koma okkur í gegnum þann vanda sem við horfumst í augu við núna (Forseti hringir.) og halda áfram sókn fyrir innlenda matvælaframleiðslu.