staða landbúnaðarins og innlendrar matvælaframleiðslu.
Virðulegur forseti. Ég vona nú að hv. þingmaður muni eftir einu mjög svo grípandi nýyrði sem varð til á síðasta ári sem var spretthópur, sem varð einmitt til í mínu ráðuneyti og var þekktur fyrir að taka snöfurmannlega á mjög flókinni stöðu, (Gripið fram í.) bregðast hratt við og taka ákvörðun um það í samráði við Alþingi að reiða af hendi umtalsverðar upphæðir, raunar 3,2 milljarða, á síðasta ári til að koma til móts við aðfangavanda og þau vandamál sem þar voru fyrir hendi. Ég hef alla tíð frá því að ég tók við embætti barist fyrir því að stuðningur við landbúnað sé aukinn, t.d. með nýjum verkefnum á sviði kornræktar, með því að ríkið komi að því að flýta innleiðingu á verndandi aðgerðum gegn riðu, með sprettgreiðslum eins og hér hefur komið fram á síðasta ári og sérstökum áburðarstuðningi. Og, virðulegur forseti, í fyrsta skipti hefur Alþingi hér undir minni forystu samþykkt nýja landbúnaðarstefnu.