fjárlög og aðgerðir gegn verðbólgu.
Virðulegur forseti. Ég skora á hæstv. fjármálaráðherra að mæta til starfa nú þegar við 2. umræðu fjárlaga, ekki að þurfa að bíða í heilt ár til að fá fjárlagafrumvarp sem tekur á vanda húsnæðislántakenda í landinu, kjaragliðnun öryrkja og aldraðra og bænda í samfélaginu.
Ef við skoðum stöðu öryrkja og aldraða þá hafa þeir þurft að bíða áfram eftir því að fá bót sinna mála. Persónuafsláttur og skattþrepamörk munu hækka um næstu áramót um 8,5%. Þessi hækkun skilar sér alla leið upp tekjustigann. Hlutfallið er áhugavert en samkvæmt greinargerð fjárlagafrumvarpsins þurfa skattþrepamörk að hækka um 8,5% til að verja kaupmátt. Á sama tíma á aðeins að leiðrétta lífeyri almannatrygginga og atvinnuleysistryggingar um 4,9%. Ef við þurfum að hækka hátekjuskattsþrepið um 8,5% til að vernda kaupmátt, af hverju hækkum við ekki lífeyri almannatrygginga um sömu prósentu? Og ef verðbólga verður meira en 4,9% á næsta ári, verður það þá ekki örugglega leiðrétt frá 1. janúar? (Forseti hringir.) Mun fjármálaráðherra leiðrétta það þegar verðbólgan verður meira en 4,9%, sem er hækkunin? (Forseti hringir.) Og af hverju eru öryrkjar og aldraðir að fá miklu lægri lækkun en varðar persónuafslátt og skattþrepin?