réttindi barna og hagsmunir þeirra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil byrja á því að segja að það tók verulega á að sjá fréttirnar í gærkvöldi og fylgjast með málinu eins og hægt var. Ég vil líka fá að segja að það bærðust auðvitað þær tilfinningar í brjósti mínu hvort — já, áhyggjur mínar af velferð barnanna í þessum aðstæðum sem þarna sköpuðust. Ég verð samt að segja að ég þekki málið ekki og ég hef ekki heimild til að tjá mig um einstök mál. Ég get ekki annað en svarað hv. þingmanni með almennum hætti. Þarna var aðfararbeiðni. Við erum aðilar að Haag-samningnum og þarna kemur aðfararbeiðni og því ber íslenskum stjórnvöldum að framfylgja henni. Hins vegar, áður en dómari úrskurðar um beiðni um aðför ber honum að gæta að 43. gr. barnalaga og það ber einnig að taka tillit til réttar barna til að tjá sig um mál er varða hag þeirra. Það er ekki í höndum sýslumanns að leggja mat á aðfararbeiðnina sem slíka heldur er hlutverk sýslumanna að framkvæma ákvarðanir dómstóla á grundvelli laga en ávallt með hagsmuni barna að leiðarljósi.