réttindi barna og hagsmunir þeirra.
Forseti. Í 45. gr. barnalaga segir, með leyfi forseta:
,,Sýslumaður getur leitað liðsinnis lögreglu við gerðina og er lögreglu skylt að verða við slíkum fyrirmælum sýslumanns. Lögreglumenn skulu vera óeinkennisklæddir við gerðina. Framkvæmd aðfarar skal hagað þannig að sem minnst álag verði fyrir barn …“
Þarna voru komnir þrír til fjórir lögreglubílar, tvö mótorhjól, allir lögreglumenn í fullum skrúða með sírenum og ljósum og öllu tilheyrandi; götum lokað og annað, eins og þarna væri um sekasta fíkniefnabarón Íslands að ræða.
Ég endurtek spurningu mína til hæstv. ráðherra: Hvað hyggst ráðherra gera til að koma skikki á þessi mál? Þá vil ég bæta við í ljósi þess að málin virðast vera að fara þennan veg þrátt fyrir aðkomu dómara: Telur hæstv. ráðherra þörf á lagabreytingum til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig í ljósi þess einnig að þarna eru skýr ákvæði barnalaga, stjórnsýslulaga og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna þverbrotin? Hver ber ábyrgð á þessu?