154. löggjafarþing — 21. fundur,  26. okt. 2023.

Málefni aldraðra.

[13:24]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Hér mætir Inga Sæland með sitt nef. Hæstv. ráðherra sagði það að ég væri í rauninni bara hér með mitt nef varðandi það sem lyti að hagsmunafulltrúa eldra fólks. Staðreyndin er sú að það var þingheimur allur sem samþykkti embætti hagsmunafulltrúa aldraðra þann 13. júní 2021, fyrir ríflega tveimur árum síðan. Það var hæstv. ráðherra sem ákvað að láta einhvern stýrihóp eða starfshóp taka fram fyrir skýran vilja löggjafans. Það er staðreyndin í málinu. Þannig að það er dapurt að hugsa til þess hvernig er verið að reyna að réttlæta hversu slæmt ástandið er hjá þúsundum aldraðra með því að sveifla hér einhverju skjali um að það sé gott að eldast. Það er gott að það er gott að eldast fyrir efnameiri eldri borgara. Það er frábært. En það er vont að eldast fyrir þá sem er haldið hér í sárri neyð. Og hvað skyldi nú hæstv. ráðherra ætla að gera í þeirri stöðu sem ég nefndi hér áðan, að það eru 25 eldri borgarar sem deyja aleinir heima hjá sér og mislengi sem þeir liggja þar áður en nokkur veit af því? Hvað á að gera fyrir þetta fólk sem er að einangrast hér og hefur í rauninni lítið sem ekkert bakland? Hvað eru stjórnvöld að gera til að hjálpa þessu fólki? Það er sárara en tárum taki hvernig er alltaf verið að slá um sig hér með stýrihópum og skýrslugerðum. Ég vil bara nefna það í þessu ástandi að hæstv. ráðherra talaði um að hann hefði líka boðið fulltrúum eldri borgara, eldra fólks, að koma að málum þegar verið var að ræða um hagsmunafulltrúann. Og hvað skyldu nú þessir fulltrúar eldri borgara hafa sagt mér þegar ég hringdi í þau, því að auðvitað talaði ég við þau líka? Þau stóðu í þeirri trú að það sem hæstv. ráðherra var að bera á borð fyrir þau þar væri viðbót við hagsmunafulltrúa eldra fólks og þau voru bara þakklát fyrir þá viðbót, þessa tvo símsvara á island.is sem eiga að koma í staðinn fyrir hagsmunafulltrúa eldra fólks.