154. löggjafarþing — 21. fundur,  26. okt. 2023.

fjármögnun á tækjakosti til bráðagreiningar á heilsugæslunni á Egilsstöðum.

54. mál
[14:05]
Horfa

Flm. (Berglind Harpa Svavarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Í dag fer fram fyrri umræða um þingsályktunartillögu mína um fjármögnun á tækjakosti til bráðagreiningar á heilsugæslunni á Egilsstöðum. Ég legg hana fram í þriðja skiptið og vonast með því til að við séum nú virkilega að komast nær því að stórefla heilbrigðisþjónustu á Austurlandi.

Ein umsögn barst á síðasta löggjafarþingi frá Heilbrigðisstofnun Austurlands þar sem tillögunni var fagnað. Ég fagna því virkilega að sú rödd hafi komið fram og það er gríðarlega mikilvægt til að ná að hraða þessari mikilvægu vegferð okkar í því að geta fullgreint bráðaástand á sem skemmstum tíma á Austurlandi samhliða því að bæta verulega vinnuumhverfi lækna.

Austurland er gríðarlega víðfeðmt, um 10% af heildarflatarmáli landsins, og þrír fjallvegir á leið fólks að þjónustu þar. Þegar til Egilsstaða er komið vantar árið 2023 tækjakostinn til að bjarga lífi þess og heilsu. Austurland er einnig í lengstu flugleið frá allri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu þar sem þangað eru um 400 km í flugi. Því liggur verulega á að taka stór skref í þessari uppbyggingu sem er einnig auðvitað gríðarlega mikilvægt um allt land óháð staðsetningu.

Ég er menntaður hjúkrunarfræðingur og starfaði árum saman á heilsugæslunni á Egilsstöðum, bráðamóttökunni okkar sem sárvantar tækjakost til bráðagreiningar. Ég er því í góðu samtali við heilbrigðisstarfsfólk sem þar starfar og mér ber því hér á Alþingi Íslendinga að leggja alla mína krafta í það að bæta vinnuumhverfi þess samhliða því að standa einnig vörð um líf og heilsu fólks. Þetta er algjört forgangsmál. Mínúturnar skipta öllu máli í bráðaerindum. Nauðsynlegt er að það taki sem stystan tíma að fullgreina heilsubrest hverju sinni til að bregðast rétt við á sem skemmstum tíma.

Mismunandi er að þessum faglegu vinnubrögðum staðið og fer það yfirleitt eftir búsetu. Það vantar verulega upp á að við séum að standa okkur í þeim upplýstu faglegu viðbrögðum á Austurlandi. Við höfum öflugt fjórðungssjúkrahús sem ég stend vörð um en sökum þess að sjúkrahúsið er staðsett í jaðri um 15.000 km² svæðis þar sem erfiðir fjallvegir eru til staðar, sem hægir verulega á því að veikt fólk komist til læknis á sem skemmstum tíma, er mikilvægt að öflugt, faglegt, upplýst viðbragð með nauðsynlegum tækjakosti sé á tveimur stöðum á Austurlandi; á fjórðungssjúkrahúsi okkar í Neskaupstað og einnig miðlægt á Austurlandi á heilsugæslunni á Egilsstöðum, við alþjóðaflugvöll okkar þar sem sjúkraflugið kemur að. Á þessum stöðum þarf að fullbráðagreina. Með þeim faglega hætti stöndum við vörð um rétt okkar allra til heilbrigðisþjónustu óháð búsetu. Við stöndum vörð um þau réttindi sem sjúklingum eru tryggð í lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997. Þar kemur skýrt fram að allir sjúklingar eigi rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu hverju sinni.

Þrátt fyrir að einhver útgjöld verði tengd auknum tækjakosti þá mun upplýst fagleg greining einnig leiða til sparnaðar þannig að tækin verða án efa fljót að greiða sig upp ef horft er á heildarmyndina. Hvert sjúkraflug til Egilsstaða kostar yfir 1 milljón króna. Sjúkraflugin verða færri vegna vissu um heilsufar fólks í kjölfar fullbráðagreiningar, sem leiðir mögulega af sér að ástand einstaklings verði mögulega ekki lífsógnandi og því ekki þörf á sjúkraflugi. Þó að það komi til sjúkraflugs eftir fullbráðagreiningu þá heldur fólk lífi sínu og heilsu vegna snemmbúinna réttra viðbragða og getur snúið út á vinnumarkaðinn ef heilsan leyfir.

Læknavísindin í dag ganga út á öfluga tækni. Við sjáum bara hvað tæknivæðingin hefur gert með breyttum vinnubrögðum á öðrum sviðum innan samfélagsins, þá helst eftir heimsfaraldurinn. Þau breyttu viðbrögð vegna aukinnar tæknivæðingar jafna tækifæri til starfa, menntunar og þjónustu óháð staðsetningu hvar sem er hér á landi.

Heilbrigðisþjónustan þarf einnig að stíga skref til framtíðar og gæti byrjað á því með kaupum á nauðsynlegum tækjakosti ásamt því að nýta tæknivæðinguna og bjóða upp á öfluga fjarheilbrigðisþjónustu. Á bráðamóttökunni hér á Landspítalanum er sérhæft starfsfólk menntað í bráðalækningum og allur lífsnauðsynlegur tækjakostur til staðar. Því er ekki nema sanngjarnt að við stöndum einnig vörð um vinnuaðstæður heilbrigðisstarfsfólks á landsbyggðinni þannig að almennir læknar starfandi á landsbyggðinni hafi bæði tækjakost, tækni og stuðning sérfræðinga í bráðalækningum til að greina gögn, meta aðstæður og viðhafa þannig öflug, rétt og fagleg viðbrögð hverju sinni á sem skemmstum tíma. Þegar því mikilvæga viðbragði er lokið þá tekur við biðin eftir sjúkraflugi og sá tími getur verið afar langur eftir því hvort vélin er upptekin í sjúkraflugi, og svo er það einnig flugtíminn. Við verðum því að fara vel með mínúturnar okkar.

Án þess að ég fari nú að lengja mál mitt mun frekar eru þessi rök sem ég hef farið yfir hér grundvöllur þess að ég legg fram þingsályktunartillögu mína í dag til fyrri umræðu og í þriðja skiptið. Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur sýnt málinu mikinn áhuga sem ég vona að sé skýrt merki um að hann muni virkilega beita sér í þessari mikilvægu uppbyggingu á vinnuumhverfi heilbrigðisstarfsfólks á Austurlandi, sem er svo fjarri þeirri sérhæfðu heilbrigðisþjónustu sem við eigum öll að hafa aðgang að.

Virðulegi forseti. Heilbrigðismál eru almennt mikið rædd hér í ræðustól Alþingis sem ég fagna. Það er afar gott. Það hefur orðið vakning hjá öllum þingmönnum og þjóðinni allri um að heilbrigðisþjónustu þurfi að bæta og við verðum að láta verkin tala. Aldrei hafa verið lagðir meiri fjármunir til heilbrigðisþjónustunnar en samt eigum við svo langt í land. Því veltir maður fyrir sér í hvað þessir fjármunir fara. Það verður því að rýna vel í aðferðafræði við veitingu heilbrigðisþjónustunnar og hvernig við getum stórbætt heilbrigðisþjónustuna fyrir þá fjármuni. Augljóst er að tæknivæðing og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu er þar lausnin. Þannig tryggjum við stórfellda heilbrigðisþjónustu um allt land með breyttri aðferðafræði við veitingu þjónustunnar.

Ég vænti eða vonast til þess að ég fái mikinn stuðning hér á Alþingi við þingsályktunartillögu mína um að tryggja fjármuni til kaupa á nauðsynlegum tækjakosti fyrir heilsugæsluna á Egilsstöðum svo hægt sé að bráðagreina til fulls heilsufar einstaklinga. Með þeim orðum lýk ég máli mínu og legg til að lokinni fyrri umræðu að málið gangi til hv. velferðarnefndar.