154. löggjafarþing — 21. fundur,  26. okt. 2023.

þjónusta vegna vímuefnavanda.

59. mál
[14:32]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Mér heyrist að við hv. þingmaður séum bara ágætlega mikið á sömu blaðsíðu þegar kemur að þessum málum. Það eru fáir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem taka oftar til máls en ég þegar kemur að þessum málaflokki, enda stendur hann mér mjög nærri. Ég held að í hverri einustu ræðu sem ég hef flutt hér á þinginu og í hverri einustu grein sem ég hef skrifað hafi þetta alltaf verið útgangspunkturinn, þ.e. forvarnirnar. En ég tek undir með hv. þingmanni þegar kemur að þessu sem ég minntist á í fyrra svari varðandi það að hafa sofnað á verðinum. Ef til vill er það þannig að okkur hefur fundist okkur hafa gengið svo vel, að foreldrum þyki þetta verið komið meira í hendurnar á menntakerfinu og stjórnvöldum og þeir séu orðnir einhvern veginn fríspilandi. Ég held a.m.k. að það sé brýn þörf á því þegar við fáum svona blikkandi viðvörunarljós um að við séum einhvern veginn að fara til baka í sama farið að við tökum öll höndum saman og sjáum hvað við getum gert betur. Ég tek undir með hv. þingmanni, ég er ekki viss um að svarið liggi í einhverri uppfærslu, ég held að það sé frekar í einhverju átaki, m.a. af hálfu foreldra, þannig að ég tek undir með hv. þingmanni þegar kemur að því.