þjónusta vegna vímuefnavanda.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að leggja fram þessa þingsályktunartillögu og leyfa mér að vera meðflutningsmaður á henni. Ég tel að við séum að tala um mjög mikilvægt mál hérna og mikilvægan anga af risastóru máli.
Eins og fram hefur komið í umræðunni hér áður þá er hæstv. heilbrigðisráðherra með nefnd að störfum til að horfa heildstætt á fíknisjúkdóma og hvernig best er að bregðast við og meðhöndla einstaklinga sem haldnir eru þeim sjúkdómi. Ég held að það sem hafi svo skort í umræðunni sé einhver heildstæð sýn. Við höfum verið of mikið í ákveðnum bútasaum. Á þessum tíma þegar þingið er að vinna fjárlög þá heyrast oft sérstaklega þær raddir í þingsal að SÁÁ og spítalinn Vogur þurfi aukna fjármuni og oftar en ekki hefur fjárlaganefnd úthlutað meiri fjármunum heldur en hæstv. heilbrigðisráðherra hefur ákveðið í fjárlögunum. En aftur kemur þessi umræða upp að ári vegna þess að það er alltaf verið að taka bara ákvörðun í hverjum fjárlögum fyrir sig. Ég held að það sé alveg ljóst að vilji þingheims stendur til þess að það séu meiri fjármunir settir í fíknisjúkdóma og meðferðir gegn þeim.
Ég velti líka fyrir mér þegar verið er að ræða um þann hóp sem þessi þingsályktunartillaga fjallar um, þ.e. þá sem ekki eru að fá viðhlítandi þjónustu, hvort þessi hópur ætti hreinlega ekki að eiga rétt á þjónustu yfir landamæri í samræmi við reglur okkar um heimildir einstaklinga til að leita þjónustu innan EES-svæðisins fái þeir ekki viðhlítandi þjónustu hér á landi. Og ég kannski velti því upp líka, fyrir okkur sem höfum áhuga á þessum málaflokki, hvort það hefði mögulega þurft að breyta eitthvað lögum um sjúkratryggingar þegar sú innleiðing átti sér stað og sú breyting var gerð til að tryggja það að ef hér eru biðlistar orðnir of langir þá geti viðkomandi aðilar sótt meðferð erlendis Það kann meira að segja að vera að það henti sumum aðilum bara mun betur. Ísland hefur reyndar lengi staðið mjög framarlega í meðferð fíknisjúkdóma og sérstaklega alkóhólisma á árum áður og ég held að það starf sem SÁÁ og Vogur hafa byggt upp hafi verið til mikillar fyrirmyndar og margir meira að segja hafa leitað til okkar um annars vegar forvarnir eins og hér var rætt, íslenska forvarnamódelið, og meðferðarúrræði held ég líka. En held að sjúkdómurinn sé flókinn og einstaklingarnir eru mismunandi og þar af leiðandi þurfa læknar eða heilbrigðismenntað fólk að finna leiðir fyrir hvern og einn þar sem þarf að mæta einstaklingnum þar sem hann er staddur í sinni vegferð og í sínu sjúkdómsferli.
Ég fagna þessari þingsályktunartillögu. Ég vona að hún hreyfi við því og ýti við því að svona heildstæð stefna verði unnin og það auðvitað gengur ekki að hér hefur umræðan í þingsal kannski fyrst og fremst snúist um lögleiðingu neysluskammta og skaðaminnkun, sem er mikilvægt, ég held að það sé mjög mikilvægt að horfa til skaðaminnkunarúrræða líka en það er bara rosalega lítill hluti af heildarmenginu sem þær lausnir svara í rauninni. Forvarnir voru nefndar hér áðan í umræðunni og þær skipta að sjálfsögðu miklu máli enda höfum við séð alveg ofboðslega mikinn árangur í forvarnamálum. En það kann einmitt að vera að nú séum við eitthvað að stefna niður á við og þurfum kannski að endurvekja það sem vel hefur tekist í gegnum tíðina.
Ég vona að þetta mál ýti við okkur. Ég held að við eigum líka að horfa á það sem er í boði erlendis og opna möguleika fólks til að sækja þjónustu þar sem það telur sig fá bestu þjónustuna. Auðvitað þurfa það alltaf að vera gagnreyndar aðferðir og ég veit það af umræðunni við Sjúkratryggingar að það er auðvitað stóra málið. Þegar Sjúkratryggingar endurgreiða heilbrigðiskostnað er gerð sú krafa til meðferðarúrræða, og það á við hvort sem um er að ræða fíknisjúkdóma eða krabbameinssjúkdóma eða einhverja aðra sjúkdóma, að það séu gagnreyndar aðferðir. Ég efast ekki um að það sé til töluvert af þeim til að bregðast við þessum sjúkdómi. Þannig að enn og aftur takk fyrir þetta. Ég held að þetta sé mikilvægt mál og ég vona að við náum frekari árangri í þessari vegferð okkar.